Ég er ennþá lasinn og er viss um að ég verð aldrei góður aftur. Svo er rok og rigning úti svo verður allt að klessu.
Allt orðið klárt vegna Perlumálsins mikla sem verður að vísu ekki í Perlunni, heldur á Nordica Hotel. Einhver smis skilningur var á því hjá mér.
Ég hitti Áka á Hressó yfir meðali í smátíma á eftir fundinn. Ég var á hjólinu. Svo hjólaði ég heim og þegar þar kom þá komst ég að því að ég hafði gleymt símanum og hjólaði til baka og náði í hann. Ég hjólaði aftur heim og kom við í Nóatúni og tíndi eitthvað í körfu til að hafa í gogginn. Eftir að ég var búinn að drösla vörunum og hjólinu upp á 5. hæð heima þá fann ég ekki lykilinn að íbúðinni.
Se betur fer geymi ég orðið aukalykil í bílnum mínum, sem ég er hættur að læsa vegna stöðugra innbrota í hann.
Þegar ég komst loksins heim þá var ég nær því að míga á mig en nokkru sinni fyrr.
Atli minn og Magga komu í gærkvöldi. Atli er snemma í jólaskapinu þetta árið og færði mér jólapakkann. Ég var fljótur að fela hann og man ekki lengur hvar ég faldi hann. Ég lánaði svo Atla jólasveinabúninginn minn þegar hann fór, því hann ætlaði að fara að gera eitthvað sniðugt.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli