17 desember 2003

Ég fór með bílinn á verkstæði í dag. Það gekk ekki lengur að hafa hann svona bilaðan fyrir utan. Hvenær ég fæ hann aftur hef ég ekki hugmynd um, en ég vona það verði fyrir jól.
Það þarf fyrst og fremst að laga bakkgírinn og hleðsluna. Þá er hann orðinn góður á ný og þá ég get skotist hingað og þangað um landið á honum án þess að hafa áhyggjur af því að komast ekki á leiðarenda eða heim aftur.

Ég er búinn að ákveða hvað verður í aðalrétt hjá mér á aðfangadagskvöld. Ákvörðunin gengur út á það að taka enga sénsa í matreiðslu á aðfangadagskvöld. Það er nokkuð sem maður getur gert á öðrum dögum ársins.

Ég er líka búinn að ákveða hvað ég gef Veigari mínum og Hafdísi í jólagjöf. Ég veit ekki ennþá hvað ég ætti að gefa Atla. Ekki veit ég heldur hvað ég gef Möggu.

Hvað gefur maður 18 ára syni sínum og 17 ára tengdadóttur í jólagjöf?
Ble-si

Engin ummæli: