04 desember 2003

Ég er sannfærður um að fjöldi fólks væri til í að kaupa alvöru upplifun fyrri alda - lifistandard alþýðufólks á Íslandi. Því langar mig að setja upp gistihús þar sem fólk gengur 3-400 ár aftur í tímann og nýtur þeirra óþæginda sem þar er boðið upp á.

Þetta væri lágreist torfhús, með moldargólfi og fletum með sauðaull í. Eldhúskrókurinn væri eldstæði og þar væri nóg af eldivið og þess tíma pottar og tól. Askar til að éta úr og tunnur með súrmat sem fólk gæti gengið í. Harðfiskur til að naga og lýsartólgar ljósfæri.

Tréfata væri fyrir utan til að sækja vatn í lækinn til neyslu. Leggir og skeljar fyrir börnin.

Gestir fengju góðar upplýsingar í bæklingi um hvernig fólk bar sig að til að hafa það eins gott og kostur var. Guðsorðabækur og sálmabækur til að glugga í.

Allt þetta myndi gestum standa til boða, ásamt klæðnaði þess tíma. Hægt væri að bjóða upp á gamaldags kvöldvöku, láta förumann banka upp á og biðja gistingar í skiptum fyrir hangikjötsbita og andlega næringu og jafnvel draugagang fyrir þá hugrökkustu.
Ble-si

Engin ummæli: