Mig dreymdi Stein Steinarr í nótt. Ekki man ég hvað draumurinn gekk út á en ég man eftir Steini í honum. Því kippti ég ljóðabók hans úr hillunni í morgun og greip í hana yfir kaffisopanum.
Steinn Steinarr var örugglega með framtíðina á hreinu að einhverju leyti. Mér datt ósjálfrátt í hug ónefndur forsætisráðherra sem segir líka einskonar "Búlúlala" öðru hvoru svo stórum hluta þjóðarinnar finnst unun að heyra og tekur hástöfum undir.
Abbessiníukeisari heitir Negus Negusi,
og Negus Negusi segir: Búlúlala.
Öllum mönnum, sem íhuga málstað ríkisins,
finnst unun að heyra Negus Negusi tala.
Og í hreinskilni sagt eru allir óvinir ríkisins,
sem ekki hlusta á Negus Negusi tala.
Ég er Negus Negusi, segir Negus Negusi,
ég er Negus Negusi. Búlúlala.
Stekkjastaur kom í nótt og færði mér Búlúlala í skóinn. Það hlýtur að vera skýringin á þessum draumi og vitrun.
Be-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli