28 janúar 2003

Top 3 - Bloggarar
1. Rakel stendur sig eins og snillingur í blogginu - ég átti svosem aldrei von á öðru.
2. Óskar stendur sig ekki síður - hlakka til þegar hann verður kominn á flug. Held hann eigi ennþá mikið inni.
3. Jón kemur mér sífellt á óvart - hélt aldrei að hann myndi halda út svona lengi.
Svo ég minnist ekki á mig - sem er náttúrulega algjört verðlaunablogg - en ég gæti hlutleysis og minnist ekkert á mína total snilld.
Sérstök hvatningarverðlaun fær Jórunn - hún höktir svona einhvernveginn - ég hef ennþá trú á að það geti orðið eitthvað úr þessu hjá henni. Ég er ánægður með uppskriftina sem var tileinkuð mér - en veit ekki alveg - svoldið frúarlegt. Hún er meiri töffari en þetta.
Ble-si

Engin ummæli: