29 janúar 2003

Gvuð minn almáttugur. Ég var rétt í þessu að muna það að það er HM-leikur núna á eftir. ISL-POL. Ég spái sigri eins og alltaf. Með svona fjórum mörkum. 32-28. Það er skorað svo agalega í þessari keppni.
Búinn að vera fínn dagur. Búinn að gera mikið og gott. Fór til dæmis niðrí bæ og fékk mér tvær pulsur með öllu á Bæjarins beztu. Þær klikka aldrei. Líklega bestu pulsur í heimi Svo þarf ég að fara í Ríkið á eftir útaf leiknum. Mér finnst nefnilega ómögulegt að horfa á handboltaleik án þess að hafa bjór við höndina. Annað er eins og að fara í bíó án þess að fá sér popp og kók.
Nú kemur sér vel að Arnlín á Bakka hefur bæst í hóp næturgesta hjá mér hérna á litla hótelinu mínu í vesturbænum. Hún er nefnilega á bíl. En minn er bilaður. Þannig að ég fæ bara hennar lánaðan og fylli skottið af guðaveigum.
Tralla-lí. Svo er ég líka svo ánægður með nýja fítusinn hér til hliðar. Málbelginn minn. Í honum getur maður leikið sér helling. Ég ætla að vera með allskyns spurningar og leiki í málbelgnum og svo er auðvitað öllum frjálst að leggja þar orð í belg eða belgja sig af einhverju monti. Ég þekki marga sem kunna það.
Um hvaðeina sem hverjum og einum dettur í hug. Jafnvel að mótmæla mér - stríða mér - dást af mér - leggja fram ástarjátningar til mín - senda mér hate mail - og bara allt sem nöfnum tjáir að nefna.
OK - Áfram Ísland!
Ble-si

Engin ummæli: