Ég er loksins búinn að skipta um skoðanakönnun. Það kom í ljós að Tuborg bjór er vinsælastur meðal landans. Það var sama hvað ég beið lengi - það breyttist aldrei. Mér kom samt mest á óvart hvað Föroyja bjór er vinsæll en næstflestir kusu hann sem bestan. Skrítið. Ég man ekki einu sinni eftir að hafa séð nokkurn mann drekka hann hér á landi. En þetta er kannski bara töff - þó ég geti vel tekið undir það að hann er góður. Kannski bara fjölmenna frændur vorir og einkavinir Færeyingar á þessa síðu og hafa svona mikil áhrif á hvað við kjósum.
Nú vil ég kann hug okkar til hafsins. Ég hef sjálfur löngum stundum horft á hafið og oft dáist ég af því hvað litur þess tekur á stundum miklum breytingum. Allt frá því að vera fryssandi hvítur upp í gráan ógeðfelldan lit og stundum verður hafið heiðblátt og stundum svart eins og skrattinn sjálfur. En það verður aldrei eins og reglulegt ævintýri. Heiðargrænt svo á það stirnir eins og mosadý á vestfirskri heiði á björtu sumarkvöldi eða gult eins og galin sóleyjarbreiða. Mig hefur oft langað til þess að verða vitni að því. Þessvegna vel ég rauðan lit á hafið.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli