Ég tók ákvörðun um nýjan lífsstíl í kvöld þar sem ég sat og strauk á mér bumbuna yfir sjónvarpinu. Ég ætla að hefjast handa annað kvöld. Fyrst verð ég að fá mér íþróttaskó - því ég á enga. Svo ætla ég að hlaupa á hverju kvöldi. Bara stutt til að byrja með - svona út að bensínstöðinni í Ánanaustum og til baka c.a. 2 km. Með tímanum ætla ég að lengja það smátt og smátt og kannski eftir mánuð þá hleyp ég 4 km.
Þá er það ákveðið.
Ég fer og fæ mér hlaupaskó á morgun. Mér líður strax mikið betur.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli