30 janúar 2003

Ég er að reyna að hafa hugann við það sem ég er að gera - en það gengur illa. Hausinn á mér er staddur í Portúgal og meðan svo er þá geri ég ekki mikið af viti. Ég er ennþá að bíða eftir mikilvægri sendingu með póstinum svo ég geti klárað þetta verkefni sem ég hef verið mest við undanfarið og senda það frá mér. Þá byrjar magapína út af útkomunni úr því. En það er í lagi því maginn er hérna megin Atlantsála þó hausinn sé annarsstaðar. Ég svaf yfir mig í morgun - vaknaði ekki fyrr en 10:30. Það var svakalegt.
Ég þori varla að spá fyrir hver verða úrslitin í leiknum við Spanjólanna í kvöld. En verð að kasta fram einhverju - læt tilfinninguna ráða í þetta sinn.
ISL 30 : 32 SPA
Svona er að vera gunga.
Ble-si

Engin ummæli: