Kokkaskóli Blesa
Ég eldaði svo framúrskarandi máltíð í kvöld sem ég ætla að deila hér á blogginu. En eins og margir vita þá er ég framúrskarandi kokkur - sem notar aldrei uppskriftir. Ég elda eftir tilfinningu. Ég er afar tilfinninganæmur þegar kemur að eldavélinni. Þetta er máltíð fyrir tvo sem hefur þann annan kost að hráefnið í hana kostar aðeins 330 krónur. Og það í Nóatúni sem er nú frekar dýr matvöruverslun. Þessi réttur heitir ekkert ennþá og ég á ekki von á að ég eigi eftir að skíra hann. En það má koma með tillögu að nafni.
OK - þá byrja ég.
Hráefni:
20 heslihnetur
1/2 appelsínugul paprika
1/2 epli
1 dós tómatpúrra (70 gr)
1 tómatur
1 laukur
Grænn chillipipar (agnarsmár)
5-6 sveppir
120 gr lamba eða nautagúllas
100 gr hrísgrjón
Ristað brauð
200-300 ml vatn
Slurk af matarolíu
Saxið grænmetið og ávöxtinn. Kveikið undir hrísgrjónum,sem eiga að sjóða í 15 mínútur. Setja olíuna á pönnu og látið hana hitna hæfilega áður en laukurinn er settur út á hana. Gefið lauknum góða stund á pönnunni en ekki brúna hann. Bætið því næst kjötinu saman við og hristið saman ásamt hnetunum. Því næst chillipiparinn sem er skorinn agnarsmátt. Á eftir fylgja sveppirnir. Nú má hrista pönnuna aftur áður en paprikunni, eplinu og tómatinum er sparkað útí. Láta allt hrærast vel saman og bæta svo tómatpúrrunni við og hræra áfram. Bæta vatninu saman við. Þá eru hrísgrjónin tilbúinn og ágætt að setja þau bara út á pönnuna, rista brauðið og hræra öllu vel saman þar til brauðið er ristað.
Og svo bara verði ykkur að góðu - fínt að fá sér glas af ísköldu vatni með.
Ódýr gómsæt og seðjandi máltíð með lágmarks uppvaski.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli