30 janúar 2003

Magur og magkona. Þessi tvo orð vísa til þess að einstaklingur (kk) er magur og einstaklingur (kvk) er mögur. Þessi orðanotkun vísar til málnotkunar sem mjög er að ryðja sér til rúms í íslenskunni, sumsé að draga úr notkun bókstafa eins og kostur er. Menn sjá fyrir sér að tölvur lækki í verði vegna færri takka á lyklaborði auk þess sem notkun lófatölva verður skilvirkari og að þær verða síður ástæða til misskilnings manna á meðal. En á meðan þróuninni stendur getur komið upp misskilningur milli samtíðarfólks. Nú þegar hefur borið á misklíð innan fjölskyldna – sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu. Heimildarmaður sem hefur með þessi mál að gera sagði að vonast væri til að á-ið væri horfið út úr íslenskunni fyrir næstu áramót. Með breytingunni styttast nokkur orð og verða því styttri. Dæmi eru um að í sumum orðum þá detti á-ið í burt. Þar má til dæmis benda á orðið sjáaldur. Dæmi: Þú er sjáaldur augna minna – setning sem styttist um einn bókstaf og verður – Þu ert sjaldur augna minna. Með þessari breytingu styttist setningin um þrjú slög á lyklaborði. Ekki þarf að ómaka sig við að slá in kommuna yfir u-ið í orðinu Þú og kommuna yfir fyrra a-ið í orðinu sjáaaldur, auk þess sem seinna a-ið hverfur alveg. Stefnt er að því að þonnið (þ)hverfi fljótlega í byrjun næsta árs og eðið (ð) um mitt næsta ár og í stað þeirra verði notaðir bókstafirnir T og D.
Meðan á þessum breytingum stendur er hætta á að rótgrónir málnotendur hafi allt á hornum sér og verði uppstökkari. Með tíð og tíma er talið að margir þeirra róist, og sætti sig við orðinn hlut. Aðrir deyja með þonn og eð á vörum. Þá má benda á einn afar jákvæðan þátt með þessari breytingu að feitar mágkonur nú til dags verða magrar og magrar mágkonur verða með fallega sléttan maga. Sama mun gilda um mága. Vonast er til þess að þessi breyting verði til þess að möguleiki á skilningi íslenskunnar verði enn ruglingslegri og tungumálið geti orðið að alvöru leynimáli og svo dularfullt í einfaldleika sínum að það verði sett á heimsminjaskrá ásamt The Grand Canyon, Þingvöllum og Kínamúrnum.
Reuter.

Engin ummæli: