03 janúar 2003

Halló - Nú er ég staddur á Internet-kaffi í Kaupmannahøfn. Ég kom med rútunni frá Berlín um midjan daginn í gær og gisti á ágætu hóteli í nótt. Hotel Absalon á horni Helgolandsgade og Istedgade.
Ég hitti Fanneyju vinkonu mína í gærkvøldi og vid fórum á indverskan restaurant og thadan á krá í smástund. Fér tiltølulega snemma í rúmid og vaknadi hress og endurnærdur í morgun.
Í dag ætla ég ad rølta um stræti Kaupmannahafnar og skoda mig um. Ég flýg svo heim í kvøld og lendi um klukkan 23:30.
Ferdin í gær frá Berlín gekk bara vel. Cordula fylgdi mér eldsnemma á rútubílastødina og thar kvøddumst vid med trega. Ég svaf stóran hluta leidarinnar krumpadur í fósturstellingum í sætinu og var allur skakkur og snúinn eftir thessa 7 1/2 tíma ferd.
En eitt get ég sagt.
Ég hlakka sko ekkert til ad koma heim.
Ble-si.

Engin ummæli: