28 janúar 2003

Frábærlega skemmtileg þessi Íslendingabók.
Ég er búinn að vera að rekja mig saman við hina og þessa sem ég þekki. Ég er til dæmis búinn að komast að því að lang-lang-lang-lang-lang amma mín í föðurætt og lang-lang-lang-lang-lang amma hans Jóns í móðurætt voru hvorki meira né minna en systur. Sko bara!
Um leið áttaði ég mig á því að Jóni ber náttúrulega skylda til að gefa frænda sínum einhverja afmælisgjöf eftir um það bil hálfan mánuð. Sem auðvitað gildir þá um allan hans systkynahóp sem er ekkert smáræði. Ha-ha-hæ hvað ég hlakka til. Ég ætla að finna fleiri skyldmenni svo ég fái fullt af pökkum.
Allir að byrja að safna!!!
Ble-si

Engin ummæli: