Jæja, þá er ég aðeins farinn að aðlagast umhverfinu aftur og hættur að vera jafn arfafúll og í gær eftir heimkomuna. Ég er semsagt ekki lengur arfafúll en svona pínu samt.
Ég gladdist ósegjanlega mikið við að skoða öll þessi ótrúlega skemmtilegu og upplífgandi jólakort sem biðu mín í póstkassanum þegar ég leit í hann áðan.
Það er alltaf sama sagan að ég skammast mín ósegjanlega mikið þegar ég les jólakortin mín - því ég hef það bara ekki í genunum að senda jólakort yfirleitt. Eins og mér finnst nú sjálfum gaman að fá þau. Þetta er þá bara mín heimska - en ekki að ég vilji ekki senda góðar kveðjur um jól og áramót. En ég geri það þá bara núna og reyni að muna eftir því að standa mig betur næst.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli