Þá er komin ný vinnuvika sem er vika þrjú á þessu ári. Helgin hjá mér var mest í rólegheitum. Var heima á föstudaginn að horfa á imbann.
Á laugardaginn tók ég mig til og innréttaði ganginn heima hjá mér. Setti þar upp langa hillu þar sem ég setti steinasafnið mitt á og sprittkerti og fullt af myndum þar fyrir ofan. Það er orðið allt annað að koma inn í kotið því tómur langur gangurinn æpir ekki lengur að manni og bendir manni á það, þegar inn er komið. Restina ef deginum gerði ég rannsóknir á flugtengimöguleikum þegar flogið er með Iceland Express til London. Nú er ég semsagt orðinn alfræðiorðabók í því. Um kvöldið skruppum við Jórunn á Vínbarinn í tvo öllara.
Á sunnudeginum gerði ég ekkert nema að bæta við mig visku á ferðamöguleikum í Evrópu. Fór um kvöldið í þessa dýrindis gúllas-súpu til nágranna míns. Þegar heim kom glápti ég á sjónvarpsdagskrána til enda og videó þar á eftir og fór allt of seint að sofa.
Það er ekki ennþá kominn vetur. Frábært fjör.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli