24 febrúar 2004

Hverjir skyldu lesa bloggið mitt? Ég þekki nokkra og veit um aðra. Erna systir og Gísli mágur minn eru dugleg að kíkja, uppáhaldsfrænkur mínar Íris og Klara, eins hann Jón snillingur á Kirkjubóli, Addi stórleikari og Árdís fjöllistamaður af Ströndum. Illugaskotta umhverfisþjóðfræðingur og Ingó vinur minn. Ég veit líka að Jórunn stórvinkona mín og besti nágranni lítur við helst einu sinni á dag. Auk þess sem Eyrún sem býr fyrir austan fjall kíkir hingað inn reglulega. Það er nú svoldið merkilegt með hana þó ég hafi aldrei hitt hana að mér finnst núorðið eins og ég þekki hana. Ég skemmti mér líka yfir blogginu hennar.

Ég held að ofantaldir séu það sem kallað er "regular" heimsækjendur. Hverjir hinir eru er ég ekki alveg viss um. Mér þætti gaman að vita það.

Hvað um það. Ég þakka ykkur öllum fyrir að leggja lykkju á leið ykkar hingað inn af óravegum internetsins.
Ble-si

Engin ummæli: