26 febrúar 2004

Ég var að hugsa um hjólatúrinn sem ég fór um Danmörku fyrir rúmum tveim árum. Það var skemmtileg ferð. Mig langar til að framkvæma svona ferð aftur og hjóla jafnvel um sveitir Póllands næst. En þá vil ég hafa einhvern með mér. Ég hugsaði oft í dönsku ferðinni þegar ég kom á fallegan eða áhugaverðan stað að þá væri gott að hafa einhvern með sér. Þó ekki væri nema til að segja "Vá - en fallegt " eða "þetta var gaman". Fegurð og upplifun verður öll miklu meiri þegar einhver er til staðar að njóta hennar með manni.

Vonandi kynnist ég einhverntíman einhverjum einhversstaðar sem er til í að taka þátt í svona ævintýri með mér.
Ble-si

Engin ummæli: