03 febrúar 2004

Ég er að pakka niður. Annar bakpokinn er orðinn fullur af hverskonar galdrastöffi fyrir sýninguna, tilberinn vel dúðraður í bóluplast sem sumum finnst gaman að sprengja og skinnið, bækur, bæklingar og margt fleira er komið á sinn stað í farangrinum.

Nú fer ég að pakka í hinn bakpokann. Í hann set ég persónulega muni s.s. nærföt og önnur hlífðarföt, tannbursta, rakvél, "gospillur" (he-he Jóka), og svona venjulegt stöff sem maður tekur með sér til útlanda.

Allt fer að verða klárt og ég varð kátur þegar ég opnaði bakpokann minn og fann Heineken flösku óopnaða. Ég opnaði hana til að svala mér á.

Lífið er fullt af ánægjulegum atvikum.
Ble-si

Engin ummæli: