28 febrúar 2004

Aldrei þessu vant var góð sjónvarpsdagskrá í gærkvöldi. Ég er sérlega ánægður með tónlistarþáttinn hans Jóns Ólafssonar og hann á skilið allar þær viðurkenningar sem hann hefur fengið. Í gærkvöldi spjallaði hann við Sigurð Flosason jassleikara með meiru. Hann er í miklu uppáhaldi hjá mér, sérstaklega eftir diskinn Raddir þjóðar. Einstakt meistaraverk.

Svo horfði ég á Mulder og Scully og það var skemmtilegt. Ég var einlægur X-Files aðdáandi á sínum tíma og gaman að hitta þau skötuhjú aftur.

Svo fór ég og hitti Ingó, Eyrúnu og fleiri á einhverri billiardsstofu austur í bær og fór þaðan á Næsta bar og á Dubliners. Ég hitti líka Robert Guillimette. Hann er skemmtilega skrítinn fýr og afskaplega gáfaður. En sem betur fer var ég kominn heim á skikkanlegum tíma, ódrukkinn.

Í morgun trimmaði ég svo í sund. Synti 500 metra, lá lengi lengi í sauna og fór í einn ljósatíma og trimmaði heim með viðkomu í Nóatúni til að kaupa skyr. Ég er allur sprækari og bjartsýnari en í morgun þegar ég vaknaði.
Ble-si

Engin ummæli: