Það er allt orðið klárt. Búinn að synda minn spotta, hlaupa tilætlaðar mílur, og klára að pakka í bakpokana. Ég er meira að segja búinn að vaska upp.
Mér er ekkert til fyrirstöðu að leggja í hann, á bara eftir að hitta Ingólf en hann ætlar að lána mér myndavél þar sem mín lenti í gólfinu með ófyrirsjánlegum afleiðingum á gamlárskvöld og hefur ekki borið barr sitt síðan. (Skrítin samlíking á málmhlut!) Ingólfur er gæðablóð og á allt það besta skilið.
Atli minn ætlar með mér út á flugvöll og taka bílinn til baka svo bróðir hans geti notað hann meðan ég er í burtu. Það er gott fyrir þau að hafa tvo bíla þar sem þau vinna í sitthvorum enda borgarinnar. Hann reyndar í Kópavogi.
En ég hlakka til og stefni á mikla og ógleymanlega landkynningu.
Vonandi tekst mér að fá nettengingu á básinn, þá get ég sent þaðan út eftir ástæðum. Verst að ég skuli vera með GSM Frelsi, því þá get ég ekki notað mér kosti símabloggs á meðan ég er í útlandinu. En það er kannski ágætt - minnugur símakostnaðarins þegar ég fór í hjólatúrinn um Danmörku á sínum tíma. (Sjá hér.)
Ég lendi í Berlín klukkan 23:00 að staðartíma og keyri til Hannover í fyrramálið.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli