Þegar ég var á Stansted um daginn þá leið mér mjög undarlega. Mér fannst ég bæði þreyttur og örþreyttur auk þess sem mér þótti ég vera yfirgengilega mikið gamalmenni, aumingi og vesalingur. Hugsaði um að ég reykti alltof mikið, drykki of lítið og gerði yfirleitt ekki nokkurn skapaðan hlut til að halda mér í einhverju formi. Ja, ég er sossum engin fitubolla, en ástandið gæti verið betra.
Þetta gerist oft fyrir mig á þessum árstíma. Reyndar alltaf á þessum árstíma. Allt er ómögulegt og mér finnst ég vera kúkablesi og rottuskræfa og stundum eins og hálfum líter meira, jafnvel þótt allt gangi eins mikið í haginn og hægt er að fara fram á.
Nú, þarna rölti ég um með kerruna með öllum farangrinum sem var ekkert smáræði, enda þurfti ég að borga yfir 30 Evrur í yfirvigt hjá Ryan Air frá Berlín. Allskyns tæki og tól sem ég þurfti að nota í Hannover í einum bakpoka, tölva í öðrum bakpoka og annar risastór bakpoki fyrir nærbuxur sokka og einn fullvaxinn tilbera á táningsaldri voru í kerrunni sem ég dröslaði á undan mér meðan ég beið þarna á Stansted í 8-9 klukkutíma.
Þar sem ég rölti með hafurtaskið í þessum flugvallargeymi rak ég augun í skóbúð með útstilltum gríðarlega áhrifaríkum þotutrimmskóm eða frekar geimskokkurum í útstillingarglugganum. Skórnir virtust vera miklir reynsluboltar. Og það á aðeins 95 Pund.
Vá, það er ekkert, hugsaði ég, því ennþá reiknaði ég allt gengi í evrum og það á vitlausu gengi.
Þá réðist á mig sú fráleita hugmynd að nú færi ég að skokka og láta öllum illum látum í framtíðinni og hressti þannig upp á sál og líkama, svo ég stökk inn í búðina og talaði þar við afgreiðslumann sem var halanegri frá Timbhútku og til baka aftur sem skokkaði greinilega á hverjum morgni fram og til baka frá London til Glasgow og til Brüssel í hádeginu í gegnum Ermasundsgöngin, án mengunargrímu.
Hann sannfærði mig um að þessir skór myndu henta mér vel enda væru þeir nánast hannaðir fyrir mig einan svo ég spurði allskyns gáfulegra spurninga um skóna eins og þegar ég þykist vera atvinnumaður í golfi og hitti golfspilara erlendis og sveifla öxlunum handahófskennt eftir því hvernig vindur blæs.
Að lokum keypti ég þessa fjárans skó og borgaði þá á borðið, og síðan hafa þeir staðið hér fyrir framan skrifborðið hjá mér og stara á mig óvildar og tröllslega illilegum augum. Ég stari á móti, milli þess sem ég gjói augunum yfir í hitt horn herbergisins og tauta svo þeir heyri ekki: "Þið eruð ljótir og óvinir mínir í þokkabót. Við eigum aldrei eftir að eiga samleið. Ekki í þessu lífi, geðsjúklingarnir ykkar."
Á milli þessara tvíbura frá táfýluhelvíti og mín er stór óyfirstíganlegur menningarheimur.
---
Bráðum klárast febrúar, þá hefst mars og svo apríl þá getum við allir þrír glaðst. Ég, og félagarnir Vinstri og Hægri. Þeir geta þá hlaupið til andskotans meðan ég sleiki sólina sem framkvæmir hita sem vonandi fer yfir 10 gráður í einhverju hitametinu.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli