Veðrið er svo yndislegt á þessum Skírdegi. Glampandi sól og svo hjálpar starrinn sem situr utan við gluggann hjá mér upp á stemninguna. Hann er búinn að sitja þarna og raula lítil lög í takti við veðrið. Skemmtilegur fugl. Mér er sagt að hann grípi hljóð úr umhverfinu og hermi eftir þeim.
Það er ferming í fjölskyldunni í dag. Guðrún Harpa hans Atla Más bróður er semsagt að fara að staðfesta skírnina. Það er rétt að gera tilraun til að komast þangað suðureftir. Kannski ég hjóli bara. Því bíllinn er ennþá bilaður. Hvað ætli maður sé lengi að hjóla í Reykjanesbæ?
Ásdís hélt upp á afmælið sitt fyrir norðan í gær - það hefur eflaust verið mikið fjör ef ég þekki hana rétt. Líf og fjör. Svo er Leikfélag Hólmavíkur að frumsýna nýtt leikrit í kvöld. Það væri gaman að sjá það. En það kemur til Reykjavíkur með leikritið og sýnir í Tjarnarbíói gamla þann 17. maí n.k. Ég hvet náttúrulega alla til að mæta þegar þar að kemur. Leikfélag Hólmavíkur klikkar aldrei.
Borgin sefur ennþá og enginn er á vappi á Hringbrautinni. Jafnvel þó klukkan sé 8:45. Nema ég og fyrrnefndur starri sem er ennþá að æfa og flytja ljúflingstóna. Jæja - nú fæ ég meira kaffi - fer svo í sturtu og raka mig.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli