05 apríl 2003

Síminn vakti mig í morgun klukkan hálfníu. Ég svaraði honum syfjulegri röddu. Í símanum var karlmannsrödd sem sagði:
- Heyrðu, ég ætla að skrá mig á námskeiðið hjá ykkur.
- Ha? - segi ég. Hvaða námskeið?
- Er ég að hringja í vitlaust númer? Er þetta ekki Galdrasýningin?
- Jú jú, - segi ég.
- Ármann sagði mér að þið væruð með námskeið í göldrum þarna fyrir norðan.
- Ha? - segi ég. Hvaða Ármann?
Svo útskýrði ég fyrir honum að Galdrasýning á Ströndum stæði ekki fyrir praktískum námskeiðum í göldrum. En hann var nú ekki alveg að gefa sig því hann virtist trúa þessum Ármanni betur en mér. Sagðist auk þess skilja það að við vildum ekki vera að flíka með þetta of mikið og heimtaði að fá komast inn á eitt af þessum lokuðu námskeiðum á Ströndum - sem hann vissi að væru fyrir hendi. Ég reyndi þá að róa manninn niður og gerðist ögn dularfyllri og spurði hann hvað stæði til hjá honum.
- Mér líst ekkert á þessar andskotans skoðanakannanir, sagði hann þá. Vinstri grænir eru að tapa flugi og missa allt niðrum sig og það gengur ekkert hjá þeim hér á Suðurlandi. Ég var bara að hugsa hvort ég kæmist ekki inn á eitt af þessum námskeiðum hjá ykkur til að kveða niður hina stjórnmálaflokkana einhvernvegin. Senda einhverja helvítis óáran á sjálfstæðisflokkinn og samfylkinguna.
Mér var farið að þykja þetta ansi skemmtilegt, reisti mig upp í rúminu og sagði:
- Mér litist nú best á að koma andskotans framsóknarflokknum frá helvíti fyrir kattarnef.
- Ha? hváði hann alveg steinhissa. Ég hefði nú aldrei lagt í að nefna það að fyrra bragði. Eru ekki allir á Ströndum framsóknarmenn? Ég var alveg viss um að það væri ástæðan fyrir því að framsóknarflokkurinn hefur verið við völd nánast óslitið síðustu 30 árin. Því það er göldrum líkast hvað þessi dvergflokkur hefur náð miklum sporslum til sín. Ertu viss um að það sé ekki af ykkar völdum?
Ég gat svosem ekkert verið viss um það, sagðist ekki hafa nákvæmar upplýsingar um það hvað bændur á Ströndum aðhefðust í frístundum sínum. En ég skyldi reyna að aðstoða hann lítillega. Við værum nefnilega með í fórum okkar sérstaka galdrastafi sem hann gæti nálgast á heimasíðunni seinna í dag.
- Hvað ertu að segja? Eru það einhverskonar rúnir þá?
- Já já, - svaraði ég. Þetta eru einskonar rúnir eða galdrastafir til málafylgju. Þú skalt rista þá á eikarfjöl og bera í skurðinn blóð úr vinstri stórutánni og geyma fjölina síðan á milli klæðanna. Svo þarftu að vera duglegur að sækja framboðsfundi hjá óvinunum og ef þú hefur meðhöndlað galdurinn rétt, þá munu fundarmenn snúast á þitt mál.
Ég lagði áherslu á að ef hann gerði eitthvað rangt við framkvæmdina þá væri hætta á að galdurinn snerist gegn vinstrihreyfingunni Grænt framboð. Svo það væri vissara fyrir hann að vanda sig. Ég sagði honum líka að það væri af og frá að ég færi að kenna honum að framkvæma einhverjar sendingar. Því ég hefði áhyggjur af því að kosningabaráttan ætti eftir að verða þvílíkt forarsvað að það væri alveg nóg þó það væru ekki líka framliðnir um hvippinn og hvappinn í einhverjum drulluslag. Þeir væru heldur ekki lengur með kosningarétt.
Hann var sáttur við þetta og kvaddi en sótti aftur fast á um að komast á einhver af þessum leyninámskeiðum sem Galdrasýning á Ströndum stendur fyrir.

Ég er að velta því fyrir mér hvort við getum ekki gert kosningabaráttuna að einskonar féþúfu fyrir Strandagaldur.
Ble-si

Engin ummæli: