22 apríl 2003

Páskaferðalagið mitt var ekki síðra en flestra annarra. Fór alla leið upp að Hafravatni í þessu einmuna hjólaveðri í gær. Settist þar niður milli þúfna og lét fara vel um mig meðan ég gæddi mér á nestinu. Fleytti svo kellingum um hríð og rölti um vatnsbakkann. Sumarið er að fæðast á ný. Ég fann ilminn af því.
Ble-si

Engin ummæli: