18 apríl 2003

Ég veit ekki hvað ég ætti að gera í dag. Eitthvað verður maður að gera. Kannski maður klári að smíða þennan vegg þarna niðri sem ég byrjaði einu sinni á. Það væri fínt að fara út að hjóla ef það væri ekki þetta rok. Svo er allt lokað allstaðar náttúrulega. Það er ágætt. Fínt að hafa einn dag á ári þar sem allt er lok lok og læs.
Ég gæti nú lagað til inni hjá mér. Tekið skrifstofuna í gegn, raðað pappírum og ryksugað og skúrað. Já, það er líklega ágæt hugmynd að byrja á því og gera svo eitthvað annað á eftir.
Svo get ég náttúrulega líka gert ekki neitt. Það er auðvitað inní myndinni líka.
Það er enginn búinn að bjóða mér í partý í kvöld.
Það finnst mér afar einkennilegt. Vægast sagt.
Ég vildi ég væri á ferðalagi í útlöndum yfir þessa páska frekar en að hanga hér. Það er 25 stiga hiti í Evrópu.
Ble-si

Engin ummæli: