Það er föstudagur í dag svo það ætti að vera Andarungi. En það er enginn Andarungi fyrst það er föstudagurinn langi. Sem segir mér að fyrst áætlunin fellur niður á Andarungann þá hlýtur Andarunginn að koma til mín. Hmm - ég ætla að athuga hvort það sé ekki ungi inní ísskáp.
(Gáð)
Jú,jú - bíðið við! Sat ekki bara ískaldur skjálfandi andarungi í einni hillunni í ísskápnum mínum og bað mig um að skvetta mestum hrollinum úr sér yfir í mig. Þar sem ég er nú afspyrnu mikill fuglavinur þá náttúrulega geri ég það. Síðan drekk ég alla bræður hans og systur.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli