Það er komið nýtt útlit í tilefni komu páskana um þessi jól.
Ég fékk ekkert páskaegg. En er búinn að drekka þrjú glös af kókómalti í staðinn. En þau verða víst ekki fleiri því mjólkin er búin og allar mjólkurbúðir eru lokaðar.
Þetta er málshátturinn sem ég fann utan á mjólkurfernunni: Það er ekki á allt kosið þegar eggjarauðan fylgir ekki egginu, sagði kellingin og renndi sér á pilsfaldinum niður brekkuna. Hvað skyldi þetta standa fyrir?
Gleðilega páska.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli