Lúlli er ekki alveg búinn að átta sig á því ennþá hver er húsbóndinn á heimilinu. Mér fannst það svolítið óþægilegt þegar hann náði af mér sófanum í gærkvöldi, svo ég varð að liggja allur á ská meðan ég horfði á sjónvarpið - því hann hreyfði sig hvergi. Svo fer það svolítið í taugarnar á honum þegar ég sit við tölvuna - þá stekkur hann upp á borðið við hliðina á mér og hendir penna niðrá gólf. Ég hef ekki haft undan að teygja mig eftir pennanum.
Ég er svoldið mikið að hlaupa á milli herbergja og athuga hvort allir gluggar séu ekki örugglega lokaðir.
Já, það er svoldið mikil vinna að vera með Lúlla í heimsókn. En hann er þægur. Ég hef bara áhyggjur af því hvað hann borðar lítið. Hann vill ekki einu sinni lifrarkæfu. Það finnst mér vera skrítin kisa.
Svo óska ég öllum gleðilegs sumars.
Ble-si
Engin ummæli:
Skrifa ummæli