18 apríl 2003

Atli minn brunaði norðan af Ströndum í bæinn í gær til að fara með mér í ferminguna, þannig að ég þurfti ekki að hjóla. Þessi fermingarveisla var fín, fullt af fólki og fermingarbarnið glæsilegt og glatt. Það er nú fyrir mestu. Húsið hjá þeim er orðið glæsilegt eftir síðustu breytingar - komin þessi æðislega sólstofa út úr eldhúsinu sem er einnig búið að stækka og breyta. Þarna vorum við öll systkynin nema Erna og Gísli, sem eru aðal, en það er orðið ansi langt síðan við höfum verið svona mörg saman undir sama þaki.
Það kom ekkert sérstakt uppá í gær. Dagurinn leið eins og hver annar skírdagur án teljandi viðburða. Ég var þó hissa á því hvað þeir eru langt komnir með að breikka Reykjanesbrautina. Þetta tekur ekki nærri því jafnlangan tíma og ég hafði ímyndað mér. En það er samt langt í land.
Sat yfir sjónvarpinu í gær - eða lá - eftir atvikum og horfði á "Im just a girl, standing in front of a boy and asking him to love her".
Fór snemma í rúmið og varð hugsað til Leikfélags Hólmavíkur þar sem það var að klára frumsýninguna á Sex í sveit. Eflaust verið fjör hjá þeim.
Ble-si

Engin ummæli: