Nú liggja úrslitin fyrir í skoðanakönnuninni miklu. Spurningin var: Hvenær kemur veturinn?
Nákvæmlega helmingur þjóðarinnar er sannfærður um að Vetur konungur banki upp á milli jóla og nýárs. Samtals voru greidd 22 atkvæði sem skiptust jafnt milli aldurs og kynja.
Frábær þátttaka! En þá er komið að næstu könnun. Nú langar mig að vita í eitt skipti fyrir öll um hug þjóðarinnar gagnvart Landsvirkjun sem hefur legið undir þungum sökum um náttúruspjöll undanfarin ár. Ég er sjálfur búinn að snúast í ótal hringi og stundum ekkert vitað í þennan haus eða hinn. Upplýsið mig og takið þátt!
Ble-si
09 desember 2002
Kæru íslendingar.
Þá fer að styttast í það að alvöru jólasveinarnir komi til byggða. Það verður semsagt í þessari viku. Ég er með frábæra tillögu að gjöf í skóinn fyrir okkur fullorðnu börnin, sem hægt er að nota sex daga í röð. Það eru galdrastaup sem hægt er að fá með sex mismundandi galdrastöfum.
Sjá hér.
Þetta er góð hugmynd, og ég mælist til þess að sem flestir kíki við á þessari síðu og panti þar staup í skóinn. Þau verða komin til ykkar fyrr en varir. Skjótar en skugginn. Svo kostar stykkið aðeins 350 krónur. Nákvæmlega sú upphæð sem rúmast í einum meðalskó.
Því jólasveinarnir láta ekki að sér hæða. Til dæmis er þessi jólasveinn
svona ofsakátur vegna þess að hann notar galdrastaup frá Galdrasýningu á Ströndum.
Vertu ekki eins og hinir - vertu öðruvísi. Vertu alvöru jólasveinn.

Þá er nú þessi annar sunnudagur í aðventu fyrir þessi jól liðinn. Þessi dagur var alveg bærilegur - hlýindi á götum úti og fjöllum uppi. Sumum leið betur en öðrum. Það er eins og það er alla daga. Hver dagur líður sitt á hvað þjáningarfullur eða fullur af lífshamingju og gleði. Minn var nú bara svona venjulegur. Hefði allt eins getað verið miðvikudagur - það var fátt sem gerði hann öðruvísi enn venjulegan dag í miðri viku fyrir utan það að Stundin okkar var í Sjónvarpinu. En ég missti af henni í þetta skipti og hugga mig við það að Stundin verður endursýnd seinna í vikunni.
En ég er glaður - ég vann í Lottóinu í gær - fúlgur fjár.
Ég veit ekki alveg hvernig ég á að höndla þessi auðæfi. Ég hef þó ákveðið að halda ró minni og hugsa málið fram yfir áramót. Það er skynsamlegast í stöðunni.
Jórunn vinkona mín og besti nágranni
hafði það skítt þennan annan sunnudag í aðventu - hún fékk aðeins of mikið í tána aðfaranótt sunnudags og var af þeim sökum ekki alveg að meika það í dag. Þetta er ekkert auðvelt og hún á alla mína samúð. En þetta lagast. Seinna. Kannski á morgun.
Kannski ekki.

08 desember 2002
Samkvæmt skoðanakönnun minni hægra megin á þessari síðu, þá standa málin þannig þessa stundina að þriðjungur þjóðarinnar telur að veturinn komi ekki fyrr en næsta vetur. Restin af íslensku þjóðinni (eða þeim sem skilja íslenskt ritmál - skal ekki segja) er svartsýnni og álítur að von sé á Vetri konungi eftir áramótin. Hvert er þitt álit? Tíminn til að taka þátt fer að styttast.
Ble-si
Ble-si
Ég var varla búinn að sleppa orðinu en skoðanakönnuninni hér hægra megin á síðunni breyttist. Nú skiptist þjóðin í tvennt. Annarsvegar þeir sem halda að veturinn komi ekkert fyrr en næsta vetur og hinsvegar þeir sem halda að veturinn komi eftir áramót.
Þetta er æsispennandi!!
Hvernig skildi þetta nú enda?
Þetta er æsispennandi!!
Hvernig skildi þetta nú enda?
Eins og sjá má þá er komin skoðanakönnun á síðuna mína. Hún fer ósköp sakleysislega af stað - frekar hallærislegt spurning. En þessi spurning verður hér inni allavegu næstu tvo daga. Ég lofa því að næstu skoðanakannanir á eftir verða mun dýpri. Ég vona að sem flestir taki þátt - þó ég hafi ekki hugmynd um hvort nokkur maður líti við hérna. En mér sýnist það samt á teljaranum, en það er spurning hvort það er ekki bara ég sjálfur, þessi kálfur, sem hef komið hingað inn yfir 600 sinnum.
Spyr sá sem ekki veit.
Ble-si
Spyr sá sem ekki veit.
Ble-si
07 desember 2002
Búið að vera hálfgert bras á mér síðan ég fór á fætur. Þessar smiðsnefnur sem settu upp skrifstofurnar á 5. hæð akademíunnar létu ekki sjá sig eins og þeir lofuðu og ég er búinn að vera að reyna að ná í þá í allan dag til að lesa yfir hausamótunum á þeim. Ekkert gekk. Ég gerði skrifstofurnar á 3. hæð sem ég hef verið að vinna í klárar undir málningu og vatt mér svo í að skipta um skrá á annarri skrifstofu. Það kostaði ótal ferðir út í BYKO, því ekkert af því sem ég keypti virtist ætla að passa. Það er stundum þannig.
Jórunn hringdi og bað mig um aðstoð við nýja eldavél sem hún var að kaupa - ég rölti þangað auðvitað, enda besti nágranninn minn - svo á hún líka svo assgoti góðan jólasnaps sem er engu líkur og smákökur sem eru barasta bestu smákökur í öllum heiminum og gegna nafninu Sörur. Ótrúlega skynsamar smákökur. Ég get étið þær endalaust
. Við redduðum þessari eldavél auðvitað í sameiningu. Kláraði síðan þetta skráarvandamál og fór svo heim.
Ó, já - svo hringdi kona af Suðurlandi og pantaði galdrakönnur. Það er nú gott. Ég er nefnilega svolítið stressaður yfir sölunni í Galdrabúðinni fyrir jólin.
ble-si.

06 desember 2002
05 desember 2002
Eins og áður er sagt þá er ég á leið til Danmerkur eftir hálfan mánuð. Af því tilefni hef ég ákveðið að skrifa einungis á dönsku þar til. Jafnvel þau orð sem ég kann ekki.
Byrjar ... núna !
Jeg ved ikke godt hvad jeg skal sige nu. Det er lidt svært at tænke sådan på dansk. Jeg kan slet ikke huske nogen ting fordi alting går i circler. Jeg håber det er dansk - eller er jeg skræk of jeg er dårligt betraget.
Mojns - til næst.

Það er orðið langt síðan ég hef sinnt þessari dagbók. Ekkert síðan ég var á einhverju Internet-kaffi í Berlín. En nú ætla ég að reyna að gera bragabót á því.
Það er annars fátt á seiði þessa dagana. Að vísu er þriðja umræða fjárlaga á Alþingi í dag og grenjandi rigning. Auk þess sem það er hávaðarok. Bíllinn minn er bilaður og vill ekki í gang og ég finn ekki vegabréfið mitt. Skil ekki hvar í fjáranum ég hef sett það.
Ég byrjaði í gær að skipta einni skrifstofu akademíunnar á 3. hæð í tvær og þyrfti helst að klára það á næstu dögum. Svo það verði frá og ég geti einbeitt mér að því að finna vegabréfið mitt ásamt svo mörgu öðru.
Það eru akkúrat 2 vikur og einn dagur þar til við förum til Danmerkur við feðgarnir og tengdadóttir. Öllum hlakkar til.