Ég er búinn að setja nýja skoðanakönnun inn þar sem ég er að kanna hvað margir þeirra sem heimsækja mig hingað eru bloggarar sjálfir. Mig langar að biðja þá að skilja eftir slóðina á síðuna sína í commentinu - því mig langar að setja tengingu yfir þá.
Skoðanakönnunin um hafið gekk þolanlega. Ég henti að vísu út hryðjuverkaskemmdarverki en mér virðist þó að 30% þeirra sem tóku þátt vilji bara hafa hafið blátt áfram og engar refjar. Það eru ótrúlega margir sem þora yfirleitt ekki að taka neina sénsa - en svo er auðvitað til fólk sem finnst blátt einfaldlega fallegt.
En mér finnst meira um vert að þá eru 70% sem væru alveg til í að breyta til og hafa hafið grænt eða rautt eða gult eða bara einhvern annan lit og taka þátt í ævintýrinu með mér.
Gaman af þessu strípalingur!
Ble-si
14 janúar 2003
13 janúar 2003
Jón er búinn að setja vegaálfinn á forsíðu Strandir.is. Mér líst vel á það. Mér litist sérlega miklu betur á það ef slóðin á myndina væri rétt og birtist almenningi. En hér er rétta slóðin http://www.strandir.is/images/vegaalfur.jpg .
En ekki file:///C:/Vefir/strandir.is/images/vegaalfur.jpg eins og hann setur það upp.
Því þá kemur bara ekkert upp. Það gerist gjarna þegar menn þrjóskast við og nota Front Page í stað Dreamweaver við heimasíðugerð.
sei-sei.

Ég tók ákvörðun um nýjan lífsstíl í kvöld þar sem ég sat og strauk á mér bumbuna yfir sjónvarpinu. Ég ætla að hefjast handa annað kvöld. Fyrst verð ég að fá mér íþróttaskó - því ég á enga. Svo ætla ég að hlaupa á hverju kvöldi. Bara stutt til að byrja með - svona út að bensínstöðinni í Ánanaustum og til baka c.a. 2 km. Með tímanum ætla ég að lengja það smátt og smátt og kannski eftir mánuð þá hleyp ég 4 km.
Þá er það ákveðið.
Ég fer og fæ mér hlaupaskó á morgun. Mér líður strax mikið betur.

Meira skítapakkafélagið þetta Icelandair. Þeir voru ekki lengi að koma með mótsvar við lággjaldafélaginu Iceland Express. Skyndilega varð allt mögulegt. Núna er hægt að fljúga Keflavík-London-Keflavík fyrir rúmar 19 þús hjá þeim. Skyndilega gátu buddunauðgararnir lækkað sig í verði. Það er svosum hið besta mál.
En athugið eitt. Ef þið viljið fá gesti frá útlöndum á sömu flugleið - þó öfugt, London - Keflavík - London þá þarf gesturinn góði að punga út yfir 40 þúsund kalli samkvæmt könnun á þessari fáránlegu og ónothæfu sölusíðu þeirra.
Þetta eru svín. Icelandairsvín.
Ekki skipta við Icelandair nema ykkur þyki gott að láta fara illa með ykkur..
Notum Iceland Express.

Þá er komin ný vinnuvika sem er vika þrjú á þessu ári. Helgin hjá mér var mest í rólegheitum. Var heima á föstudaginn að horfa á imbann.
Á laugardaginn tók ég mig til og innréttaði ganginn heima hjá mér. Setti þar upp langa hillu þar sem ég setti steinasafnið mitt á og sprittkerti og fullt af myndum þar fyrir ofan. Það er orðið allt annað að koma inn í kotið því tómur langur gangurinn æpir ekki lengur að manni og bendir manni á það, þegar inn er komið. Restina ef deginum gerði ég rannsóknir á flugtengimöguleikum þegar flogið er með Iceland Express til London. Nú er ég semsagt orðinn alfræðiorðabók í því. Um kvöldið skruppum við Jórunn á Vínbarinn í tvo öllara.
Á sunnudeginum gerði ég ekkert nema að bæta við mig visku á ferðamöguleikum í Evrópu. Fór um kvöldið í þessa dýrindis gúllas-súpu til nágranna míns. Þegar heim kom glápti ég á sjónvarpsdagskrána til enda og videó þar á eftir og fór allt of seint að sofa.
Það er ekki ennþá kominn vetur. Frábært fjör.

12 janúar 2003
Til Dublin - Írland
19/6 Keflavík Airport 15:00 Iceland Express Kr. 7.360 Til: London Stansted 18:50
19/6 London Stansted 21:10 Ryan Air Kr. 4.260 Til: Dublin 22:20
26/6 Dublin 17:05 Ryan Air Kr. 1.040 Til: London Stansted 18:15
26/6 London Stansted 19:50 Iceland Express Kr. 6.800 Til: Keflavík Airport 21:40
Samtals Kr. 19.460
Þetta er aðeins dæmi um þá ferðamöguleika sem hafa opnast fyrir okkur íslendinga síðustu daga. Mér líður svo vel yfir þessu. Ég áttaði mig á því í leiðinni hvað það hlýtur að vera hrikalegt að búa við lélegt vegakerfi eins og sumsstaðar á landinu. Mér finnst ég bara vera orðinn frjáls. Takk fyrir ICELAND EXPRESS. Húrra fyrir ykkur og húrra fyrir RYAN AIR.
Nú getur maður farið að leggja land undir fót.
Ble-si.

08 janúar 2003
Hmmm - ég hef sterkan grun um að það sé einhver að svindla í skoðanakönnuninni minni. Ég er ekki viss um að niðurstöðurnar verði mjög vísindalegar.
Ekki þegar einhver hryðjuverkamaður ryðst inn með sprengivörpu og skothvellum og kýs blátt haf minnst tíu sinnum og hverfur svo jafn hljóðlátt á braut og hann birtist.
Skandali! Ég er algjörlega ráðalaus og í uppnámi í ofanálag.

06 janúar 2003
Ég er loksins búinn að skipta um skoðanakönnun. Það kom í ljós að Tuborg bjór er vinsælastur meðal landans. Það var sama hvað ég beið lengi - það breyttist aldrei. Mér kom samt mest á óvart hvað Föroyja bjór er vinsæll en næstflestir kusu hann sem bestan. Skrítið. Ég man ekki einu sinni eftir að hafa séð nokkurn mann drekka hann hér á landi. En þetta er kannski bara töff - þó ég geti vel tekið undir það að hann er góður. Kannski bara fjölmenna frændur vorir og einkavinir Færeyingar á þessa síðu og hafa svona mikil áhrif á hvað við kjósum.
Nú vil ég kann hug okkar til hafsins. Ég hef sjálfur löngum stundum horft á hafið og oft dáist ég af því hvað litur þess tekur á stundum miklum breytingum. Allt frá því að vera fryssandi hvítur upp í gráan ógeðfelldan lit og stundum verður hafið heiðblátt og stundum svart eins og skrattinn sjálfur. En það verður aldrei eins og reglulegt ævintýri. Heiðargrænt svo á það stirnir eins og mosadý á vestfirskri heiði á björtu sumarkvöldi eða gult eins og galin sóleyjarbreiða. Mig hefur oft langað til þess að verða vitni að því. Þessvegna vel ég rauðan lit á hafið.

05 janúar 2003
Jæja, þá er ég aðeins farinn að aðlagast umhverfinu aftur og hættur að vera jafn arfafúll og í gær eftir heimkomuna. Ég er semsagt ekki lengur arfafúll en svona pínu samt.
Ég gladdist ósegjanlega mikið við að skoða öll þessi ótrúlega skemmtilegu og upplífgandi jólakort sem biðu mín í póstkassanum þegar ég leit í hann áðan.
Það er alltaf sama sagan að ég skammast mín ósegjanlega mikið þegar ég les jólakortin mín - því ég hef það bara ekki í genunum að senda jólakort yfirleitt. Eins og mér finnst nú sjálfum gaman að fá þau. Þetta er þá bara mín heimska - en ekki að ég vilji ekki senda góðar kveðjur um jól og áramót. En ég geri það þá bara núna og reyni að muna eftir því að standa mig betur næst.

04 janúar 2003
03 janúar 2003
Halló - Nú er ég staddur á Internet-kaffi í Kaupmannahøfn. Ég kom med rútunni frá Berlín um midjan daginn í gær og gisti á ágætu hóteli í nótt. Hotel Absalon á horni Helgolandsgade og Istedgade.
Ég hitti Fanneyju vinkonu mína í gærkvøldi og vid fórum á indverskan restaurant og thadan á krá í smástund. Fér tiltølulega snemma í rúmid og vaknadi hress og endurnærdur í morgun.
Í dag ætla ég ad rølta um stræti Kaupmannahafnar og skoda mig um. Ég flýg svo heim í kvøld og lendi um klukkan 23:30.
Ferdin í gær frá Berlín gekk bara vel. Cordula fylgdi mér eldsnemma á rútubílastødina og thar kvøddumst vid med trega. Ég svaf stóran hluta leidarinnar krumpadur í fósturstellingum í sætinu og var allur skakkur og snúinn eftir thessa 7 1/2 tíma ferd.
En eitt get ég sagt.
Ég hlakka sko ekkert til ad koma heim.