Mig langar að óska afmælisbörnum dagsins til hamingju með daginn. Það hlýtur að vera fjórföld ánægja að eiga afmæli í dag. Skrítið að eiga afmælisdag bara fjórða hvert ár. Ég þekki eina konu sem á sinn átjánda afmælisdag í dag, en er með réttu orðin 72 ára.
Ble-si
29 febrúar 2004
Það mætti kannski bjóða heimsveldinu kleinur?
Ég skora á alla að fara að sjá Sirkus Hugleiks í Tjarnarbíói. Ég fór í gærkvöldi á frumsýninguna og það er langt síðan ég hef hlegið jafnmikið og innilega. Þvílík snilld sem þetta leikrit er.
Meira um Sirkus hér.

28 febrúar 2004
Fór og hitti litla afastrákinn minn í dag og lék endalaust við hann milli þess sem ég smellti myndum af honum. Kíkti svo á bókamarkaðinn í Perlunni, fór heim í kaffi og þaðan á Grillhús Guðmundar í mat. Þar fékk ég mér gómsætan skötusel. Nú er ég að hita strauboltann til að geta straujað buxurnar fyrir leikhúsið í kvöld.
Ble-si
Ble-si
Aldrei þessu vant var góð sjónvarpsdagskrá í gærkvöldi. Ég er sérlega ánægður með tónlistarþáttinn hans Jóns Ólafssonar og hann á skilið allar þær viðurkenningar sem hann hefur fengið. Í gærkvöldi spjallaði hann við Sigurð Flosason jassleikara með meiru. Hann er í miklu uppáhaldi hjá mér, sérstaklega eftir diskinn Raddir þjóðar. Einstakt meistaraverk.
Svo horfði ég á Mulder og Scully og það var skemmtilegt. Ég var einlægur X-Files aðdáandi á sínum tíma og gaman að hitta þau skötuhjú aftur.
Svo fór ég og hitti Ingó, Eyrúnu og fleiri á einhverri billiardsstofu austur í bær og fór þaðan á Næsta bar og á Dubliners. Ég hitti líka Robert Guillimette. Hann er skemmtilega skrítinn fýr og afskaplega gáfaður. En sem betur fer var ég kominn heim á skikkanlegum tíma, ódrukkinn.
Í morgun trimmaði ég svo í sund. Synti 500 metra, lá lengi lengi í sauna og fór í einn ljósatíma og trimmaði heim með viðkomu í Nóatúni til að kaupa skyr. Ég er allur sprækari og bjartsýnari en í morgun þegar ég vaknaði.

27 febrúar 2004
26 febrúar 2004
Ég var að hugsa um hjólatúrinn sem ég fór um Danmörku fyrir rúmum tveim árum. Það var skemmtileg ferð. Mig langar til að framkvæma svona ferð aftur og hjóla jafnvel um sveitir Póllands næst. En þá vil ég hafa einhvern með mér. Ég hugsaði oft í dönsku ferðinni þegar ég kom á fallegan eða áhugaverðan stað að þá væri gott að hafa einhvern með sér. Þó ekki væri nema til að segja "Vá - en fallegt " eða "þetta var gaman". Fegurð og upplifun verður öll miklu meiri þegar einhver er til staðar að njóta hennar með manni.
Vonandi kynnist ég einhverntíman einhverjum einhversstaðar sem er til í að taka þátt í svona ævintýri með mér.

Verður nokkurn tíma nokkuð vit í því sem maður gerir fyrr en kona fer að hafa vit fyrir manni?
Ég hitti Áka á Hressó í gær og þegar ég kom heim þaðan þá hringdi Maggi og boðaði til fundar með Lóa á öðru veitingahúsi. Atli skutlaði mér þangað eftir pílukastskeppni milli okkar feðganna.
Þar sátum við og funduðum mikið og lengi og drukknuðum nánast í fundarefninu.

Nú er Habbiddí systir í heimsókn hjá Ernu systur í Horsens. Gummi gröfukall mágur minn og eiginmaður Habbiddíar á nefnilega afmæli á morgun og þau ætla að halda upp á afmælið með dönum. Það finnst mér vera vel til fundið.
Systur mínar tvær eru ansi skemmtilegar. Ég held þær séu skemmtilegustu systur í heimi.

25 febrúar 2004
Þegar ég var á Stansted um daginn þá leið mér mjög undarlega. Mér fannst ég bæði þreyttur og örþreyttur auk þess sem mér þótti ég vera yfirgengilega mikið gamalmenni, aumingi og vesalingur. Hugsaði um að ég reykti alltof mikið, drykki of lítið og gerði yfirleitt ekki nokkurn skapaðan hlut til að halda mér í einhverju formi. Ja, ég er sossum engin fitubolla, en ástandið gæti verið betra.
Þetta gerist oft fyrir mig á þessum árstíma. Reyndar alltaf á þessum árstíma. Allt er ómögulegt og mér finnst ég vera kúkablesi og rottuskræfa og stundum eins og hálfum líter meira, jafnvel þótt allt gangi eins mikið í haginn og hægt er að fara fram á.
Nú, þarna rölti ég um með kerruna með öllum farangrinum sem var ekkert smáræði, enda þurfti ég að borga yfir 30 Evrur í yfirvigt hjá Ryan Air frá Berlín. Allskyns tæki og tól sem ég þurfti að nota í Hannover í einum bakpoka, tölva í öðrum bakpoka og annar risastór bakpoki fyrir nærbuxur sokka og einn fullvaxinn tilbera á táningsaldri voru í kerrunni sem ég dröslaði á undan mér meðan ég beið þarna á Stansted í 8-9 klukkutíma.
Þar sem ég rölti með hafurtaskið í þessum flugvallargeymi rak ég augun í skóbúð með útstilltum gríðarlega áhrifaríkum þotutrimmskóm eða frekar geimskokkurum í útstillingarglugganum. Skórnir virtust vera miklir reynsluboltar. Og það á aðeins 95 Pund.
Vá, það er ekkert, hugsaði ég, því ennþá reiknaði ég allt gengi í evrum og það á vitlausu gengi.
Þá réðist á mig sú fráleita hugmynd að nú færi ég að skokka og láta öllum illum látum í framtíðinni og hressti þannig upp á sál og líkama, svo ég stökk inn í búðina og talaði þar við afgreiðslumann sem var halanegri frá Timbhútku og til baka aftur sem skokkaði greinilega á hverjum morgni fram og til baka frá London til Glasgow og til Brüssel í hádeginu í gegnum Ermasundsgöngin, án mengunargrímu.
Hann sannfærði mig um að þessir skór myndu henta mér vel enda væru þeir nánast hannaðir fyrir mig einan svo ég spurði allskyns gáfulegra spurninga um skóna eins og þegar ég þykist vera atvinnumaður í golfi og hitti golfspilara erlendis og sveifla öxlunum handahófskennt eftir því hvernig vindur blæs.
Að lokum keypti ég þessa fjárans skó og borgaði þá á borðið, og síðan hafa þeir staðið hér fyrir framan skrifborðið hjá mér og stara á mig óvildar og tröllslega illilegum augum. Ég stari á móti, milli þess sem ég gjói augunum yfir í hitt horn herbergisins og tauta svo þeir heyri ekki: "Þið eruð ljótir og óvinir mínir í þokkabót. Við eigum aldrei eftir að eiga samleið. Ekki í þessu lífi, geðsjúklingarnir ykkar."
Á milli þessara tvíbura frá táfýluhelvíti og mín er stór óyfirstíganlegur menningarheimur.
---
Bráðum klárast febrúar, þá hefst mars og svo apríl þá getum við allir þrír glaðst. Ég, og félagarnir Vinstri og Hægri. Þeir geta þá hlaupið til andskotans meðan ég sleiki sólina sem framkvæmir hita sem vonandi fer yfir 10 gráður í einhverju hitametinu.

24 febrúar 2004
Hverjir skyldu lesa bloggið mitt? Ég þekki nokkra og veit um aðra. Erna systir og Gísli mágur minn eru dugleg að kíkja, uppáhaldsfrænkur mínar Íris og Klara, eins hann Jón snillingur á Kirkjubóli, Addi stórleikari og Árdís fjöllistamaður af Ströndum. Illugaskotta umhverfisþjóðfræðingur og Ingó vinur minn. Ég veit líka að Jórunn stórvinkona mín og besti nágranni lítur við helst einu sinni á dag. Auk þess sem Eyrún sem býr fyrir austan fjall kíkir hingað inn reglulega. Það er nú svoldið merkilegt með hana þó ég hafi aldrei hitt hana að mér finnst núorðið eins og ég þekki hana. Ég skemmti mér líka yfir blogginu hennar.
Ég held að ofantaldir séu það sem kallað er "regular" heimsækjendur. Hverjir hinir eru er ég ekki alveg viss um. Mér þætti gaman að vita það.
Hvað um það. Ég þakka ykkur öllum fyrir að leggja lykkju á leið ykkar hingað inn af óravegum internetsins.

Ég er farinn að kvíða fyrir kvöldinu. Þá leggst einmanaleikinn og svartdrunginn yfir. Febrúar og mars eru hörmungar mánuðir. Skil ekki hvað það var verið að láta mig fæðast í febrúar.
Ég græt yfir óréttlæti heimsins, illskunni og fórnarlömbunum. Hvað skyldi vera stóra samhengið í öllu saman? Til hvers er allt þetta basl? Allt hlýtur að hafa sinn tilgang. Öðruvísi eru hlutirnir tilgangslausir. Fæðast, lifa og deyja? Til hvers? Eitthvað hlýtur að búa þar að baki. Erum við bara einskisnýtir maurar? Eitt tannhjól í risasköpunarverki sem við höfum ekki hugmynd um hvað er eða til hvers?
Spyr sá sem ekki veit. Allavega er ég orðinn hundleiður á þessu.
Ég rakaði af mér skeggið í gærkvöldi. Til hvers? Sjálfsagt til að gera eitthvað gagn. Nú er ég skegglaus og ætla að vera skegglaus til eilífðarnóns. Hvenær sem það nón byrjar.

23 febrúar 2004
Í morgun. Skokkað í Vesturbæjarlaugina. Fór í einn ljósatíma og svitnaði rækilega. Sturta. Synti 200 metra, nennti ekki meira því sundkennslan var hafin og þurfti því að synda eins og sardína í dós. Heiti potturinn smástund, sturta og skokkað heim í nýju skokkskónum mínum.
Dagurinn hafinn og aðrir dagar að baki. Við tekur ný sólarupprás hvern dag með nýrri hugsun.