Nú er Habbiddí systir í heimsókn hjá Ernu systur í Horsens. Gummi gröfukall mágur minn og eiginmaður Habbiddíar á nefnilega afmæli á morgun og þau ætla að halda upp á afmælið með dönum. Það finnst mér vera vel til fundið.
Systur mínar tvær eru ansi skemmtilegar. Ég held þær séu skemmtilegustu systur í heimi.
Ble-si
26 febrúar 2004
25 febrúar 2004
Þegar ég var á Stansted um daginn þá leið mér mjög undarlega. Mér fannst ég bæði þreyttur og örþreyttur auk þess sem mér þótti ég vera yfirgengilega mikið gamalmenni, aumingi og vesalingur. Hugsaði um að ég reykti alltof mikið, drykki of lítið og gerði yfirleitt ekki nokkurn skapaðan hlut til að halda mér í einhverju formi. Ja, ég er sossum engin fitubolla, en ástandið gæti verið betra.
Þetta gerist oft fyrir mig á þessum árstíma. Reyndar alltaf á þessum árstíma. Allt er ómögulegt og mér finnst ég vera kúkablesi og rottuskræfa og stundum eins og hálfum líter meira, jafnvel þótt allt gangi eins mikið í haginn og hægt er að fara fram á.
Nú, þarna rölti ég um með kerruna með öllum farangrinum sem var ekkert smáræði, enda þurfti ég að borga yfir 30 Evrur í yfirvigt hjá Ryan Air frá Berlín. Allskyns tæki og tól sem ég þurfti að nota í Hannover í einum bakpoka, tölva í öðrum bakpoka og annar risastór bakpoki fyrir nærbuxur sokka og einn fullvaxinn tilbera á táningsaldri voru í kerrunni sem ég dröslaði á undan mér meðan ég beið þarna á Stansted í 8-9 klukkutíma.
Þar sem ég rölti með hafurtaskið í þessum flugvallargeymi rak ég augun í skóbúð með útstilltum gríðarlega áhrifaríkum þotutrimmskóm eða frekar geimskokkurum í útstillingarglugganum. Skórnir virtust vera miklir reynsluboltar. Og það á aðeins 95 Pund.
Vá, það er ekkert, hugsaði ég, því ennþá reiknaði ég allt gengi í evrum og það á vitlausu gengi.
Þá réðist á mig sú fráleita hugmynd að nú færi ég að skokka og láta öllum illum látum í framtíðinni og hressti þannig upp á sál og líkama, svo ég stökk inn í búðina og talaði þar við afgreiðslumann sem var halanegri frá Timbhútku og til baka aftur sem skokkaði greinilega á hverjum morgni fram og til baka frá London til Glasgow og til Brüssel í hádeginu í gegnum Ermasundsgöngin, án mengunargrímu.
Hann sannfærði mig um að þessir skór myndu henta mér vel enda væru þeir nánast hannaðir fyrir mig einan svo ég spurði allskyns gáfulegra spurninga um skóna eins og þegar ég þykist vera atvinnumaður í golfi og hitti golfspilara erlendis og sveifla öxlunum handahófskennt eftir því hvernig vindur blæs.
Að lokum keypti ég þessa fjárans skó og borgaði þá á borðið, og síðan hafa þeir staðið hér fyrir framan skrifborðið hjá mér og stara á mig óvildar og tröllslega illilegum augum. Ég stari á móti, milli þess sem ég gjói augunum yfir í hitt horn herbergisins og tauta svo þeir heyri ekki: "Þið eruð ljótir og óvinir mínir í þokkabót. Við eigum aldrei eftir að eiga samleið. Ekki í þessu lífi, geðsjúklingarnir ykkar."
Á milli þessara tvíbura frá táfýluhelvíti og mín er stór óyfirstíganlegur menningarheimur.
---
Bráðum klárast febrúar, þá hefst mars og svo apríl þá getum við allir þrír glaðst. Ég, og félagarnir Vinstri og Hægri. Þeir geta þá hlaupið til andskotans meðan ég sleiki sólina sem framkvæmir hita sem vonandi fer yfir 10 gráður í einhverju hitametinu.

24 febrúar 2004
Hverjir skyldu lesa bloggið mitt? Ég þekki nokkra og veit um aðra. Erna systir og Gísli mágur minn eru dugleg að kíkja, uppáhaldsfrænkur mínar Íris og Klara, eins hann Jón snillingur á Kirkjubóli, Addi stórleikari og Árdís fjöllistamaður af Ströndum. Illugaskotta umhverfisþjóðfræðingur og Ingó vinur minn. Ég veit líka að Jórunn stórvinkona mín og besti nágranni lítur við helst einu sinni á dag. Auk þess sem Eyrún sem býr fyrir austan fjall kíkir hingað inn reglulega. Það er nú svoldið merkilegt með hana þó ég hafi aldrei hitt hana að mér finnst núorðið eins og ég þekki hana. Ég skemmti mér líka yfir blogginu hennar.
Ég held að ofantaldir séu það sem kallað er "regular" heimsækjendur. Hverjir hinir eru er ég ekki alveg viss um. Mér þætti gaman að vita það.
Hvað um það. Ég þakka ykkur öllum fyrir að leggja lykkju á leið ykkar hingað inn af óravegum internetsins.

Ég er farinn að kvíða fyrir kvöldinu. Þá leggst einmanaleikinn og svartdrunginn yfir. Febrúar og mars eru hörmungar mánuðir. Skil ekki hvað það var verið að láta mig fæðast í febrúar.
Ég græt yfir óréttlæti heimsins, illskunni og fórnarlömbunum. Hvað skyldi vera stóra samhengið í öllu saman? Til hvers er allt þetta basl? Allt hlýtur að hafa sinn tilgang. Öðruvísi eru hlutirnir tilgangslausir. Fæðast, lifa og deyja? Til hvers? Eitthvað hlýtur að búa þar að baki. Erum við bara einskisnýtir maurar? Eitt tannhjól í risasköpunarverki sem við höfum ekki hugmynd um hvað er eða til hvers?
Spyr sá sem ekki veit. Allavega er ég orðinn hundleiður á þessu.
Ég rakaði af mér skeggið í gærkvöldi. Til hvers? Sjálfsagt til að gera eitthvað gagn. Nú er ég skegglaus og ætla að vera skegglaus til eilífðarnóns. Hvenær sem það nón byrjar.

23 febrúar 2004
Í morgun. Skokkað í Vesturbæjarlaugina. Fór í einn ljósatíma og svitnaði rækilega. Sturta. Synti 200 metra, nennti ekki meira því sundkennslan var hafin og þurfti því að synda eins og sardína í dós. Heiti potturinn smástund, sturta og skokkað heim í nýju skokkskónum mínum.
Dagurinn hafinn og aðrir dagar að baki. Við tekur ný sólarupprás hvern dag með nýrri hugsun.

22 febrúar 2004
Í dag. Gera við eina hurð í RA svo bröns á Vegamótum, rölt um bæinn, innlit í Kolaportið þar til öndunarfærin þoldu ekki meir, niðrá Tjörn að gefa öndunum brauð, þaðan á þjóðahátíð í Ráðhúsinu og síðan í þrjúbíó að sjá hestamyndina hans Þorleifs í Háskólabíó. Rölt heim og komið við í Melabúðinni og keyptar bollur og fjölvítamín.
Farið heim og borðað tvær bollur, lagt sig í et par fimmtán mínútur og svo boðið í mat til Jórunnar, löguð vaskstífla svo tvö sérrísglös með þeim systrum og þá heim að leggjast fyrir framan sjónvarpið.
Talað við Ernu systur á SKYPE-inu og opnaður öl og horft á Nikolaj og Juliet.
Þetta er með viðburðarríkari sunnudögum. Síðasta sunnudag fór ég í Sjónvarpsturninn í Berlín og skoðaði borgina úr lofti. Næsta sunnudag? Good question.

Ég gerði nákvæmlega ekki neitt í gær. Íhugaði eingöngu erfiðismál og flakkaði á milli niðurstaðna.
Nú er ég að velta fyrir mér hvort vinskapur sé ekki það dýrmætasta sem völ er á. Eða hvort það sé bara hugsýn. Getur verið að það sé erfiðara fyrir karlmann að eiga í innilegum vinskap við hitt kynið en kvenmann? Er önnur hugsun sem liggur ávallt í leyni og bíður þess að spretta fram hjá okkur körlunum? Eða er þetta bara alveg eins. Ekki veit ég það. Ég veit ekkert.
En ég veit það að miklar fjarlægðir eru ekki til að gera hlutina einfaldari. Svo mikið er víst.
Á morgun byrja ég aftur að synda.

21 febrúar 2004
Nú er ég klæddur og kominn á ról. Undanfarin tvö kvöld hef ég farið að sofa klukkan níu. Gjörsamlega búinn á því andlega. En eftir helgi þá byrja ég aftur á líkamshreyfingunni og syndi og skokka eins og Morrinn ætli að gleypa mig.
Ég fór með Rakel á Hressó seinnipartinn í gær og við áttum skemmtilegt samtal. Það er langt síðan ég hef hitt hana. Síðan kom Óskar og hressti upp á samkomuna.
Ég sársakna Cordulu ennþá, en ég verð að reyna að komast yfir það sem allra fyrst. Þetta gengur ekki lengur. Þegar ég var ungur þá hélt ég að þegar maður yrði eldri þá myndi maður hafa stjórn á tilfinningum sínum. En það er hreint ekki þannig. Svei, mér þá, maður verður bara verri með aldrinum ef eitthvað er. Það er afar sársaukafullt til þess að hugsa en að sama skapi er líka viss fegurð yfir því. Þessar óbærilegu tilfinningar sem hamast á manni og koma í veg fyrir alla sálarró sýna kannski þrátt fyrir allt að maður er lifandi og fær um að elska. Það er auðvitað yndislegt.
Best að ég hætti núna áður en það fer að rigna yfir lyklaborðið hjá mér.

19 febrúar 2004
Í dag snýtir himininnn sér og ég er hættur að blogga, því ég kem engan veginn frá mér því sem mér liggur á hjarta og hvílir þungt á mér. Fullkomin rit- og hugstífla. Það er eins og hugsunin hafi falið sig niðrí maganum og snúist þar í hringi og öskri á magaveggina og valdi þessari óþægilegu vanlíðan sem umlykur mig allan. Stundum finnst mér eins og ég horfi á sjálfan mig utan frá og að ofan og ofsæki mig af öllum kröftum.
Vonandi verð ég einhverntíman skemmtilegur aftur og get glaðst yfir mörgum litlum smáatriðum sem lætur fólki finnast það fallegt og eftirsóknarvert. Vonandi á þessu ári eða því næsta.
Nema ég falli í hof gleymskunnar og hími þar með öðrum sem teljast ekki nógu góðir papyrusar.