Alveg er ég með ólíkindum. Annars eins snillingur hefur ekki fæðst hér á jörð. Ferðatorgið hjá mér í dag var þvílík snilld að ég veit vart hvernig á að orða það.
Svei mér þá. Ég veit ekki hvað ætti að gera við mig.
Svo fór ég rakleiðis í fermingarveisluna hennar Eyrúnar sem var þokkalega ágæt. Svona eins og fermingarveislur eru. Setið við borð og úðað í sig kökum og talað "nonnsens" við ættingjana.
Ble-si
04 maí 2003
Ég sofnaði yfir sjónvarpinu í gær eins og svo oft áður og vaknaði allur í krumpu í sófanum árla morguns. Er búinn að vera ansi duglegur síðan. Vaska upp og standa í allskyns heimilisdedúi. Svo er ég búinn að vinna Vindhana fyrir verkefni Jórunnar og senda henni. Næst á dagskrá er að kaupa fermingargjöf dagsins og undirbúa mig fyrir Ferðatorgið klukkan 15:00 í dag. Kristín Einars og Rósa komu í gær og ég aðstoðaði þær við að uppfæra heimasíðu þjóðfræðingafélagsins. Svo nú bíð ég bara eftir skrautskrifaða skjalinu frá félaginu þar sem það útnefnir mig sem heiðursfélaga númer þrjú fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf í þágu þjóðfræðingafélagsins.
Ég var semsagt bara heima hjá mér í gærkvöldi. Jórunn kom og við ætluðum að gera helling í verkefninu hennar en það varð ekkert úr neinu. Á morgun segir sá lati. En merkilegast af öllu var að hann Atli minn var kominn heim upp úr ellevu og ákvað bara að eyða kvöldinu heima. Svo lokaði hann að sér með kærustunni inni í herberginu sínu.

03 maí 2003
02 maí 2003
Mig langar bara að minna fólk á og að það rifji upp hverjir stóðu fyrir handtökum hér á landi á meðlimum friðarhreyfingarinnar Falon Gong fyrir aðeins 10,5 mánuðum síðan og á fangabúðirnar sem settar voru upp í Grunnskólanum í Njarðvík í kjölfarið og mig langar líka að fólk muni hverjir stóðu að því að setja nafn Íslands við innrásina inn í Írak þar sem fjöldi óbreyttra borgara létu lífið og/eða örkumluðust fyrir lífsstíð í viðleitni Bandaríkjamanna, Breta, Íslendinga og Dana ásamt nokkrum öðrum þjóðum í leit að ósýnilegum gjöreyðingavopnum. Ég er að vísu alveg viss um að þau finnast skömmu eftir að Kanarnir, með okkar stuðningi, hafa komið þeim fyrir og falið vegsummerki okkar.
Mér virðist það vera sem svo að við séum ansi fljót að gleyma. Skoðanakannanir vegna alþingiskosningana síðustu daga segja mér það.
Áfram Ísland!, en með öðrum formerkjum en slagorð Sjálfstæðisflokksins.
Kjósum nýja ríkisstjórn með það eitt að leiðarljósi að þurfa ekki að skammast okkar fyrir að vera Íslendingar.

Í dag þarf margt og mikið að gerast. Borga reikninga, fara með ferðabæklinga af Ströndum á Ferðatorgið, fara síðan á opnunina klukkan 16:00 og þiggja léttar veitingar, sem verður helvítis puð, ákveða hvern fjárann ég ætti að taka uppá klukkan 14:45 á morgun og klukkan 15:00 á sunnudaginn. Svo þarf ég að kaupa bíl.
Ble-si
Ble-si
01 maí 2003
Ég var að taka prófið á Kosningakompás mbl.is
Samsvörun svara minna við svör flokkanna er sem hér segir:
Vinstrihreyfingin - grænt framboð (U) 80%
Nýtt afl (N) 80%
Samfylkingin (S) 77%
Frjálslyndi flokkurinn (F) 76%
Sjálfstæðisflokkur (D) 64%
Framsóknarflokkur (B) 63%
Ég er bara nokkuð ánægður með að Vinstri Grænir tróni efstir. Ég skil bara ekki hvað þetta Nýja afl er að troða sér þarna? Það getur verið vegna þess að ég hef aldrei kynnt mér stefnuskrá þeirra, en ég á heldur ekki á von á að ég muni gera það.
Annars eru niðurstöður í þessum kosningaprófum sem ég hef gert mjög merkilegar. Það má vart milli sjá hvaða flokk ég styð mest samkvæmt þeim. Hvað ætli sé að mér? Afhverju skyldi enginn flokkur höfða algjörlega til mín og afhverju er enginn flokkur sem gerir það alls ekki.

Tilvitnun af Jóns síðu: "Kom heim í gærkveldi og er búinn að sitja við tölvuna og borga reikninga síðan. Börnin eru að fara að horfa á Harry Potter og leyniklefann sem ég gaf þeim, ofsa kát. Ester gaf ég nýja ryksugu og 10 aukapoka. Hún er líka ofsakát (en sefur reyndar enn)."
Jón lætur ekki að sér hæða. Því ætla ég að setja saman skuðhendu með hnykk með undarlegum stuðlum, rímum og höfuðstöfum ættaða frá hirðskáldinu frá Grund í Steingrímsfirði.
Úr kaupstað kemur frár á fæti,
í farteskinu lumar, á verkfæri sem sumar,
spúsur yfir engin kunna læti, og sofa því af einskærri kæti.

Ég er alveg búinn að gefast upp á því að bíllinn minn komist nokkuð í lag aftur. Þar sem ég get ekki verið bíllaus mikið lengur þá er ég búinn að ákveða að gefa hann upp á bátinn og henda honum eða gefa eftir atvikum. Í stað þess ætla ég að fá mér annan bíl sem ég er búinn að festa augun á. Best að gera það bara á morgun. Hér er mynd af honum.
Ég er ekki enná búinn að finna út hvern fjárann ég ætti að taka upp á þessu Ferðatorgi um helgina. Það er slæmt.
Ble-si
Ég er ekki enná búinn að finna út hvern fjárann ég ætti að taka upp á þessu Ferðatorgi um helgina. Það er slæmt.
Ble-si