Það er föstudagur í dag svo það ætti að vera Andarungi. En það er enginn Andarungi fyrst það er föstudagurinn langi. Sem segir mér að fyrst áætlunin fellur niður á Andarungann þá hlýtur Andarunginn að koma til mín. Hmm - ég ætla að athuga hvort það sé ekki ungi inní ísskáp.
(Gáð)
Jú,jú - bíðið við! Sat ekki bara ískaldur skjálfandi andarungi í einni hillunni í ísskápnum mínum og bað mig um að skvetta mestum hrollinum úr sér yfir í mig. Þar sem ég er nú afspyrnu mikill fuglavinur þá náttúrulega geri ég það. Síðan drekk ég alla bræður hans og systur.
Ble-si
18 apríl 2003
Ég veit ekki hvað ég ætti að gera í dag. Eitthvað verður maður að gera. Kannski maður klári að smíða þennan vegg þarna niðri sem ég byrjaði einu sinni á. Það væri fínt að fara út að hjóla ef það væri ekki þetta rok. Svo er allt lokað allstaðar náttúrulega. Það er ágætt. Fínt að hafa einn dag á ári þar sem allt er lok lok og læs.
Ég gæti nú lagað til inni hjá mér. Tekið skrifstofuna í gegn, raðað pappírum og ryksugað og skúrað. Já, það er líklega ágæt hugmynd að byrja á því og gera svo eitthvað annað á eftir.
Svo get ég náttúrulega líka gert ekki neitt. Það er auðvitað inní myndinni líka.
Það er enginn búinn að bjóða mér í partý í kvöld.
Það finnst mér afar einkennilegt. Vægast sagt.
Ég vildi ég væri á ferðalagi í útlöndum yfir þessa páska frekar en að hanga hér. Það er 25 stiga hiti í Evrópu.

Atli minn brunaði norðan af Ströndum í bæinn í gær til að fara með mér í ferminguna, þannig að ég þurfti ekki að hjóla. Þessi fermingarveisla var fín, fullt af fólki og fermingarbarnið glæsilegt og glatt. Það er nú fyrir mestu. Húsið hjá þeim er orðið glæsilegt eftir síðustu breytingar - komin þessi æðislega sólstofa út úr eldhúsinu sem er einnig búið að stækka og breyta. Þarna vorum við öll systkynin nema Erna og Gísli, sem eru aðal, en það er orðið ansi langt síðan við höfum verið svona mörg saman undir sama þaki.
Það kom ekkert sérstakt uppá í gær. Dagurinn leið eins og hver annar skírdagur án teljandi viðburða. Ég var þó hissa á því hvað þeir eru langt komnir með að breikka Reykjanesbrautina. Þetta tekur ekki nærri því jafnlangan tíma og ég hafði ímyndað mér. En það er samt langt í land.
Sat yfir sjónvarpinu í gær - eða lá - eftir atvikum og horfði á "Im just a girl, standing in front of a boy and asking him to love her".
Fór snemma í rúmið og varð hugsað til Leikfélags Hólmavíkur þar sem það var að klára frumsýninguna á Sex í sveit. Eflaust verið fjör hjá þeim.

17 apríl 2003
Veðrið er svo yndislegt á þessum Skírdegi. Glampandi sól og svo hjálpar starrinn sem situr utan við gluggann hjá mér upp á stemninguna. Hann er búinn að sitja þarna og raula lítil lög í takti við veðrið. Skemmtilegur fugl. Mér er sagt að hann grípi hljóð úr umhverfinu og hermi eftir þeim.
Það er ferming í fjölskyldunni í dag. Guðrún Harpa hans Atla Más bróður er semsagt að fara að staðfesta skírnina. Það er rétt að gera tilraun til að komast þangað suðureftir. Kannski ég hjóli bara. Því bíllinn er ennþá bilaður. Hvað ætli maður sé lengi að hjóla í Reykjanesbæ?
Ásdís hélt upp á afmælið sitt fyrir norðan í gær - það hefur eflaust verið mikið fjör ef ég þekki hana rétt. Líf og fjör. Svo er Leikfélag Hólmavíkur að frumsýna nýtt leikrit í kvöld. Það væri gaman að sjá það. En það kemur til Reykjavíkur með leikritið og sýnir í Tjarnarbíói gamla þann 17. maí n.k. Ég hvet náttúrulega alla til að mæta þegar þar að kemur. Leikfélag Hólmavíkur klikkar aldrei.
Borgin sefur ennþá og enginn er á vappi á Hringbrautinni. Jafnvel þó klukkan sé 8:45. Nema ég og fyrrnefndur starri sem er ennþá að æfa og flytja ljúflingstóna. Jæja - nú fæ ég meira kaffi - fer svo í sturtu og raka mig.

16 apríl 2003
Ha ha ha hæ. Ég fór oní bæ seinnipartinn og losaði mig við vonda skapið og fúllyndið. Keypti mér fullt af nýjum fötum og hagaði mér eins og eyðslusöm eiginkona. Eyddi og eyddi - og var snöggur að því.
Nú er ég allur bjartari yfirlitum og viðbúinn að taka við vorinu. Hress og kátur.
Ég er ferlega fínn og feitur.

15 apríl 2003
14 apríl 2003
Þetta er einn versti dagur sem ég hef upplifað.
Helvítis helvíti - það er ekkert að ganga upp hvergi - vonandi kominn nýr útgefandi. Hinn er útí hafsauga - því hann hefur engan skilning á því að Angurgapi er merkilegra rit en ljósritið hans Matthíasar Viðars sem þeir sitja uppi með í þúsundatali. Ömurlegt að vera að tala um þessi tvö rit í einni og sömu setningunni. Ég ætla að brenna mitt eintak.
Hefði aldrei átt að hringja í stjórnarformann Byggðastofnunar. Og þó? Ekki viss.