Veigar minn á afmæli á sunnudaginn. Þá verður hann 21 árs. Eitthvað verð ég nú að gefa honum í afmælisgjöf - veit bara ekki hvað það ætti að vera. Hmm?
Ég man þegar hann fæddist. Þá var nú gaman. Og heima beið hans risastórt hvítmálað rimlarúm sem ég hafði smíðað.
Ble-si
14 nóvember 2003
Ókindarkvöldið var til mikils sóma. Yfir 100 manns mættu svo stemningin var mögnuð. Atriðið mitt gekk upp eins og það væri þrælæft hjá okkur Hilmari. Þvílíkur andskotans snillingur sem hann er.
Svo magnaðar voru þessar særingar að ég sjálfur var orðinn dauðskelkaður um að hinir víðfrægu Iðnódraugar einfaldlegu réðust á mig og ætu mig. Það var mögnuð stemning í salnum og gestirnir lyfti fingrunum og gerðu krossmark sér til varnar og hrópuðu með mér Sator Arepo Tenet Opera Rotas.
Þetta var gaman. Það fyndnasta er að útvarpið klúðraði upptökunni þegar kom að mér - svo þetta er ekki til. Mér er sko sama - en þeir eru spældir.
Ble-si
13 nóvember 2003
OK. Fekk simhringingu og buid ad leyfa bjorsölu. Hallærisskap afstyrt. Eg sny vid og fer ekki i Rikid.
Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Ég ætla nú rétt að vona að það verði seldur bjór þarna. Annað er nú hallæriskapur frá Helvíti.
Ég var nefnilega að fregna að það mætti ekki selja bjór þarna af því að það væri ekkert aldurstakmark. Hva! Hva! Hva! Hvusslax andskotans hallærisafturábaksamfélagsóhroði er þetta sem maður býr í? Er búið að breyta Iðnó í einhvern leikskóla? Er þetta einhver andskotans jólatrésskemmtun fyrir smábörn? Þvílíkur hrottans skandalli!
Fjandaskottið!

Það er ekki laust við að ég sé smá stressaður og nervös yfir Ókindarkvöldinu í kvöld. Við fórum þó örlítið yfir málin á fundi í gærdag og niðurstaðan varð að Erpur myndi byrja og blása út og Steindór kæmi svo inn til hans - skömmu síðar myndi Erpur hlaupa út úr húsi því hann þarf að stjórna útvarpsþætti klukkan 10 - þá mun Steindór kveða dágóða stund þar til ég kæmi einhverntíman inn og myndi enda þetta. Hilmar aftur mun sjá til þess að það verði einhver tónlist undir þessu öllu hjá okkur. En hvernig þetta verður veit ég ekki. Vandi er um slíkt að spá.
Ég er að hugsa um að koma fram í síðasta skipti í kvöld í þessum ófrýnilega galdrabúningi - maður er einhverveginn hættur að stjórna þessu sjálfur auk þess sem þessi búningur fer í taugarnar á vissum einstaklingi.
Ég hlakka mest til að heyra í Sigga pönk. Hann er sko alvöru hávaðaseggur.

Mér líst illa á það að Gary McAllister ætli að hverfa frá Wolpherhampton Wonderbra og verða næsti stjóri Lips City United í Sledge stýri. Mér sýnist enski boltinn allur vera á niðurleið við þessi ógurlegu tíðindi. Esserton FC (footballclub) sem er úr vesturbæ Hretingon stýri er í skít og slæmum málum við miðja deildina eftir að stjóri þeirra, hinn smái Christian Slade, popparinn frá Grey Forest Dark City var keyptur til Singen Straße Wunder til að bjarga þeim frá sigri í þýska handboltanum, en SSW á við þá örðugleika að stríða að allir leikmennirnir eru einhentir og geta því ekki tvíhent bikarnum nema í hvorn annan en samstaða liðsins leyfir það ekki.
En þetta vissu bara ég og Guð - þar til núna. Ef að ég er þá til.
Ble-si
En þetta vissu bara ég og Guð - þar til núna. Ef að ég er þá til.
Ble-si
12 nóvember 2003
Hér er mynd frá opnun Draugasetursins á Stokkseyri sem Ingólfur Júlíusson ljósmyndari sendi mér.
Þarna krýpur galdramaður af Ströndum albúinn að taka á öllu sínu og fær hjálp frá draugasetursmanninum Þóri Vigfússyni við að kveða alvöru drauga til búsetu á draugasetrinu.
Ble-si
Þarna krýpur galdramaður af Ströndum albúinn að taka á öllu sínu og fær hjálp frá draugasetursmanninum Þóri Vigfússyni við að kveða alvöru drauga til búsetu á draugasetrinu.
Ble-si
Æi, er þetta ekki bara rugl að vera að standa í þessu bloggi? Maður hefur raunverulega ekki neitt að skrifa um af því að þetta er ekki raunveruleg dagbók. Í raunverulega dagbók nótar maður sínu dýpstu hugsanir og þrár, nokkuð sem maður gerir ekki á opnu bloggi. Allavega ekki ég. Maður veit aldrei hverjir detta inn á þessar síður og ekki vill maður galopna sig varnarlausan gagnvart hvaða lúsablesa sem er.
Ég hélt dagbók til margra ára um tvítugt og var einmitt að blaða í þeim um daginn.
"Heilaga guðsmóðir!" að maður færi að bera sig þannig fyrir opnum tjöldum eins og birtist á þriðju hverju síðu í þessum gömlu dagbókum. Ljóti lifnaðurinn á ungum manni. Hneyksli! Ég yrði æfur og verulega áhyggjufullur ef börnin mín eyddu unglingsárunum í svona rugl og þvælu.
Hvað um það. Ég ætla að grípa niðrí saklausa færslu í dagbókinni sem var skrifuð þann 14. maí 1980.
Fór í enskupróf í morgun og mér gekk vel. Sigurborg hringdi í mig eftir prófið og sagði mér að ég yrði að klára ritgerðina í íslensku í dag, því ég hefði náð prófinu en myndi ekki fá það gilt nema ég skilaði ritgerðinni. Mér finnst þetta asnalegt að segja mér að ég hefði náð prófinu og síðan í næsta orði að ég hefði ekki náð því nema...! Ég tautaði og röflaði í henni smátíma sem var auðvitað ekki til neins svo ég labbaði með þessa fjárans ritgerð til hennar tæpum tveim tímum síðar. Svo fór ég í 4 bíó og svo á ball og datt ekki í það.
Þetta var saklaust.

11 nóvember 2003
Í kvöld var kvöld hinna miklu heimsókna. Fór fyrst í Grafarvoginn að hitta krúsidúllurnar mínar og skila lyklinum að íbúðinni minn sem ég geymi þar til nota þegar ég læsi mig úti, en ég læsti mig einmitt úti þegar ég skrattaðist niðrá Stöð 2 í gær. Þau voru ekki heima svo það var ekki annað að gera en að setja lykilinn í póstkassann hjá þeim, svo hann sé á vísum stað næst þegar ég læsi mig úti. Það gerist svona fjórum sinnum á ári.
Þá ákvað ég að fara í kaffi til Árna litla bróður í Kópavoginum, en hann var ekki heima og ekki nokkur leið að ná í hann. Svo stefnuna tók ég til Rakelar og Óskars í hundrað og einum Reykjavík og þau voru náttúrulega heima, hress og kát.
Þar fékk ég þetta langþráða kaffi og bull yfir því.
Svona var nú ævintýri kvöldsins að mestu leyti og nú langar mig í köku fyrir svefninn.
Ég held að máninn sé hálffullur. Hann starir með morðglampa inn um gluggann hjá mér og reynir að hylja sig í skýjum öðru hvoru og heldur að ég fatti ekki hvað hann hugsar.
Það er smá scary.

Í dag er dagur hinna miklu afreka. Það getur ekkert komið í veg fyrir það. Þarf að byrja á því að gera fjárhagsáætlun til næstu fimm ára fyrir Sparisjóðinn svo menn verði glaðir þar á bæ.
Í dag örlar ekkert á morgunsólinni því skýjaþykknið í austri er þykkt eins og óhrært skyr beint úr kúnni og ætlar sér að verja okkur vel gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Það er gott - að spara sólina til sumars.