10 nóvember 2003

Ókindarkvöld - ,,þeir voru svo pönkaðir í gamla daga"

Hér er dagskráin:

Félag þjóðfræðinga á Íslandi heldur árlegt Ókindarkvöld í Iðnó, fimmtudagskvöldið 13. nóvember kl. 20:00.
Aðgangur kr. 500 og miðar seldir við innganginn.

Timothy Tangherlini, prófessor í Þjóðfræði í Háskólanum í Kaliforníu, Los Angeles (UCLA), kynnir og sýnir heimildamynd um upphaf pönksins í Suður-Kóreu.

Steindór Andersen, Hilmar Örn, Erpur Eyvindar og Siggi Atla munu í einu atriði; rappa, kveða rímur og koma draugum fyrir.

Pönksveitin Dys flytur Ókindarkvæði, gamalt íslensk rímnalag í mjög pönkuðum búningi.

Hljómsveitin Changer flytur dróttkvæði á sinn einstaka ,,harðkjarna" hátt.


Svo er nú það. Meira veit ég ekki. Hitti Steindór á morgun yfir kaffibolla, nema hvorugur okkar drekki kaffi, og ákveðum hvað og hvernig verður að þessu staðið.
Ble-si
Nei - nú veit ég. Ég verð sýnilegur og geri Angurgapa sýnilegan í leiðinni. Nota hann sem hjálpargagn í gjörningnum. Í stað þess að láta maka mig blóði læt ég dagskrármanninn leggja hönd á hina (helgu) bók, Angurgapa, honum til verndar.
Þetta er schnilld!
Ble-si
Ég veit! Ég geri mig bara ósýnilegan þannig að enginn finni mig fyrr en á föstudaginn. Ósýnilegur maður getur ekki verið í forsvari. En það er víst ekki aftur snúið. En ég ætla samt að snúa mér út úr því þegar ég kem uppeftir. Með einu eða öðru móti.
Ble-si
Ég nefndi það í morgun hér á blogginu mínu að líklega væri allt að fara til Helvítis. Líklega er það alveg rétt.
Fyrir nokkrum vikum samþykkti ég að taka þátt í dagskrá með Steindóri Andersen, Hilmar Erni og Erpi á Ókindarkvöldi í Iðnó á vegum Þjóðfræðingafélagi Íslands.

Aldrei ætlaði ég að vera í forsvari fyrir þetta. Það stóð aldrei til - enda er þetta ekki mín hugmynd. Undanfarna daga hefur þó verið einhver titringur hjá tónlistarmönnunum sem koma þarna fram. Allt mjög undarlegt. Ég held það hafi eitthvað með peninga að gera. Peningar senda nefnilega allt til Helvítis.

Svo hringir formaður þjóðfræðingafélagsins í mig rétt í þessu og segir mér að mæta upp á Stöð 2 og kveða niður draug í settinu í Íslandi í dag í kvöld klukkan 19:30 til að kynna Ókindarkvöldið n.k. fimmtudagskvöld. Ég veit ekki hvers er ætlast af mér þar - ég veit ekki einu sinni hvers er ætlast til af mér á Ókindarkvöldinu - ég hef varla hugmynd um hverjir koma þar fram. Hvað þá að ég viti klukkan hvað það byrjar. Eina sem ég veit er að Iðnó stendur við tjörnina í Reykjavík og að tjörnin er gruggug með fullt af öndum og svönum.

Ég er órólegur yfir þessu og veit ekki hvað skal gjöra. Ég ætlaði ALDREI að vera í forsvari fyrir þetta. Ég ætlaði heldur aldrei að taka peninga fyrir þetta. Peningar eru orsök alls ills.

Ég álpaðist að vísu til að segja formanni félagsins að ég vildi allt fyrir þau gera. Nema að eiga eitthvað frumkvæði. Svo er manni ýtt út í það út frá einhverju asnalegu loforði.

Hvað á ég að gera? Svar óskast. Núna! Áður en allt fer endanlega til Helvítis hjá mér.
Ble-si
Guðmundur Andri rithöfundur skrifar þetta um daginn og veginn í Fréttablaðinu í dag.


Ble-si
Það er engu líkara en að allt sé að fara til Helvítis. Grátt skýjaþykknið á himninum liggur mjög neðarlega og á milli þeirra slær blóðrauðum geislum morgunsólarinnar. Það er djöfullegt að horfa á þetta. Líklega fer allt til Helvítis í þessari viku - eða þeirri næstu.
Ble-si
Þetta var nú ekki merkilegur hjólatúr. Bévitans mótvindurinn alls staðar.
Ble-si

09 nóvember 2003

Fór aðeins á rúntinn og þá hringdi síminn. Það var Maggi og við hittumst á Unganum. Ræddum þar yfir öli. Kom við á indverskum á leiðinni heim og fékk mér góðan snæðing.

Hér er ég nú og sé að messinn er fullur af skilaboðum en hinir offline.
Það er nú svo.

Er að hugsa um að fara niðrí bæ á hjólinu og á einhvern pöbb og reiða einhverja kellingu heim fyrir nóttina. Slá þannig tvær flugur í einu höggi - því þeim finnst það gaman og mér hundleiðist at the moment. Það er líka við hæfi að halda upp á afmæli bróðurs míns þannig.
Ble-si
Ég var grútsyfjaður upp úr miðnætti í gær og fór því snemma í rúmið. Vaknaði svo hress og kátur í morgun og brosti yfir morgunkaffibollanum. Dreif mig svo í föt og fór útí Sorpu með rusl sem hafði safnast í bílinn minn meðan á endurbyggingunni stóð hjá Veigari.

Svo ók ég í BYKO Kópavogi og verslaði nýjar hurðarskrár í sex hurðar í Akademíunni og skipti um þær.

Núna er ég ekki að gera neitt. Ég vildi óska að ég nennti að fara að laga til hérna heima hjá mér - en ég nenni því bara alls ekki.

Atli Már bróðir minn á afmæli í dag. Hann fæddist árið 1955. Ég veit ekki hvort hann er heima núna - en hann starfar sem flugvélstjóri hjá Atlanta og er yfirleitt alls staðar annars staðar en heima hjá sér.

Það hefur enginn hringt í mig í dag.
Ble-si

08 nóvember 2003

Maturinn hjá krökkunum var algert æði - ekta gamaldags lambahryggur eins og hann best gerist. Við átum á okkur göt og nutum hans vel. Það er svo gaman að heimsækja börnin sín á þeirra eigið heimili.

Þetta er einn af þeim hlutum sem gerir það svo skemmtilegt við að eldast.

Þegar heim kom beið mín skemmtilegur tölvupóstur frá vinkonum mínum í Hudiksvall. Þær voru að dreypa á rauðvíni og söknuðu félagsskapar míns, svo ég hringdi til Sverige og tók þátt í partýinu með þeim um stund. Gaman að heyra í þeim Marielle og Malin - alltaf kátar og hressar.

Nú er ég að borða súkkulaðiís með stórum jarðarberjum yfir sjónvarpinu og hlusta á rokið.
Ble-si
Svona fór um margmiðlunarsjóferð þá.
Fjandaskottið hafi það bara.

Eins og mér sé ekki sama?
Mér er sko alveg sama.
Eins og mér sé ekki sama? Mér er sko alveg sama.
Eins og mér sé ekki sama? Mér er sko alveg sama.

Alveg nett sama. Þá þarf ég allavega ekki að vera að leggjast í eitthvað ferðalag og hafa ekki efni því.

Eins og mér sé ekki sama?Mér er sko alveg sama.
Ble-si



Svo segir Fréttablaðið en mbl.is segir aftur þetta.
Ble-si
Gott er að vakna glaður og hress og hrista sig á lappir.
Í kvöld er mér boðið í mat og í nótt svaf ég vel.
Ble-si