13 febrúar 2004

Í tilefni afmaelisdagsins í gaer baud ég Cordulu á Indverskan veitingastad,sem er inaestu götu vid thar sem hún býr. Indverskur matur er búinnad vera lengi í uppáhaldi hjá mér og thessi stadur brást ekki. Besta Indian Restaurant sem ég hef farid á.

Ég fékk afmaelisgjöf frá Cordulu, USB minniskubb, nokkud sem mig hefur lengi langad ad eiga. Pakkinn kom mér gjörsamlega á óvart. Svo fórum vid í stórskrítna búllu og ég drakk of mikid öl og er thví thunnur í dag. Thad hefur mér alltaf thótt frekar leidinlegt.

Hvad um thad - verkurinn lídur hjá og nýr dagur vid naesta horn.

Thad er nú svo. Ég hlakka til ad hitta alla spilafíklana á morgun.
Ble-si

12 febrúar 2004

Thad hefur margt og mikid á daga mína drifid undanfarid eftir ad sýningunni í Hannover lauk. Strax daginn eftir átti ég fródlega fundi med tveim adilum í Hannover í tengslum vid galdraspilid. Annar theirra funda leiddi mig sudur til Ravensburg sem er vid svissnesku landamaerin.

Thangad var nú gaman ad koma.

Vid gistum a leidinni sudur eftir i Paderborn sem er heimabaer Cordulu, hjá foreldrum hennar og ókum svo áleidis til Ravensburg med millilendingu í Nürnberg. Ad vísu var Nürnberg krókurinn hálfgerd fýluferd - en thad gerir sko ekkert til. Vid gistum ekki í Ravensburg en ákvadum ad gista í Frederiksburg sem er vid Bodensee vatnid Hinum megin vid vatnid gnaefa alparnir og naeturljosin thar eru svissnesk. Thad var huggulegt. Daginn eftir skodudum vid Zeppelin safnid sem var ansi athyglisvert.

Vid lögdum í hann til Berlín klukkan 17:00 i gaer og vorum komin á midnaetti. Eg er nefnilega ordinn ansi magnadur a Autobananum. Their eru ekki margir sem fara fram úr mér thar.

Afmaelisdagurinn byrjadi einmitt thegar vid komum til Berlín og ég baud upp á öl.

Í dag átti ég frábaert samtal í síma vid spilaframleidanda og hönnud í Berlin og thau budu mér ad koma á spilarádstefnu á laugardaginn kemur vog thar get ég hitt fullt af athyglisverdu fólki og kynnt Galdraspilid. Thad er aldeilis magnad.

Annars er frekar kalt í Berlín thessa stundina - hitinn hleypur á frostmarki.

Ég thakka afmaeliskvedjurnar og legg á hédan frá Berlín, thar sem öll mín plön eru í gódum farvegi og eiginlega í betra standi en ég thordi upphaflega ad vona. Ég lagdi nefnilega í thetta spilaferdalag án nokkurra vaentingar.

Allt í s#oma nema ad ég er ordinn of gamall og fer vaentanlega ad drepast úr elli ef ég finn ekki lyf vid henni. Mér lídur svoldid thannig ad ég hafi látid lífid hlaupa fram hjá mér til thessa

Thetta er Siggi Atla sem talar beint frá Berlín.
Ble-si

08 febrúar 2004

Thad var brjálad ad gera á básnum í gaer. Allt klikkad bókstaflega. Vid fórum á kínverskan restaurant á eftir og drukkum tvo lítra af hvítvini.

Ég var med númer hjá bás Kasakstan rétt fyrir lokun í gaer. Thau komu til mín og bádu mig um ad koma ad máta sérstök hreindýraföt og réttu mér svo drumbur og bádu mig um ad gera eitthvad.

Svo ég tók mig til og lamdi drumbuna og dansadi um gólfid og fór med íslenskan galdraseid i Khasaktsínum hreindýrafötum. Thad safnadist múgur og margmenni í kringum mig og ég fékk thau til ad taka thátt, med thví ad hrópa á vissum stödum í seid-dansinum: Sator, Arepo o.svfrv.

Thetta gerdi mikla lukku og ég gaf eiginhandaráritun í fyrsta skipti á aevinni.

Ég er í pásu núna, tharf ad borda smá - sídan fer ég aftur í básinn og held svo áfram ad kynna Vestfirdi og Galdrasýninguna.

Mikid fjör og gódur árangur. Í kvöld lýkur sýningunni og vid tekur ferdalag á milli ùtgefanda og ad koma galdraspilinu mikla á framfaeri.

Thetta er Siggi Atla sem talar beint frá Hannover.
Ble-si

07 febrúar 2004

Thad er allt buid ad ganga srambi vel her i hannover. Syningin hja okkur hefur gegnid vel og hefur vakid mikla eftirtekt i fjölmidlum her.

Thad var stor mynd af mer og umfjöllun i utbreiddasta dagbladinu i Hannover i morgun og og eg nadi ad troda Cordulu i vidtal vid utvarpsstöd.

Thad er buid ad vera allt klikkad ad gera a basnum hja okkur og mikid fjör. Thad stoppa aberandi margir i basnum hja okkur til ad kynna ser ferdamoguleika a Islandi.

Eg er nuna i rutubil sem er stadsettur a syningarsvaedinu og inni i henni er internetkaffi. Syningarsvaedid er svo stort ad eg get bara alls ekki lyst thvi.

Gistiheimilid sem vid erum a er ekki beint fyrir kongafolk, en thad sleppur - naestum thvi.

Thetta er mjög treytandi vinna en allt tekur enda.

Thar til naest, god kvedja fra Hannover. Nenni ekki ad lysa smaatridum.
Ble-si

04 febrúar 2004

Geng um bord. Primavedur i Keflavik. Hef a tilfinningunni ad velin komist alla leid. Nanast klakklaust.

? Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Alltaf jafn gaman i Frihofninni. Sætur og ljufur ölinn. Er kominn i ferdahug.

? Ble-si
Sent með GSMbloggi Hex
Það er allt orðið klárt. Búinn að synda minn spotta, hlaupa tilætlaðar mílur, og klára að pakka í bakpokana. Ég er meira að segja búinn að vaska upp.

Mér er ekkert til fyrirstöðu að leggja í hann, á bara eftir að hitta Ingólf en hann ætlar að lána mér myndavél þar sem mín lenti í gólfinu með ófyrirsjánlegum afleiðingum á gamlárskvöld og hefur ekki borið barr sitt síðan. (Skrítin samlíking á málmhlut!) Ingólfur er gæðablóð og á allt það besta skilið.

Atli minn ætlar með mér út á flugvöll og taka bílinn til baka svo bróðir hans geti notað hann meðan ég er í burtu. Það er gott fyrir þau að hafa tvo bíla þar sem þau vinna í sitthvorum enda borgarinnar. Hann reyndar í Kópavogi.

En ég hlakka til og stefni á mikla og ógleymanlega landkynningu.

Vonandi tekst mér að fá nettengingu á básinn, þá get ég sent þaðan út eftir ástæðum. Verst að ég skuli vera með GSM Frelsi, því þá get ég ekki notað mér kosti símabloggs á meðan ég er í útlandinu. En það er kannski ágætt - minnugur símakostnaðarins þegar ég fór í hjólatúrinn um Danmörku á sínum tíma. (Sjá hér.)

Ég lendi í Berlín klukkan 23:00 að staðartíma og keyri til Hannover í fyrramálið.
Ble-si

03 febrúar 2004

Ég er að pakka niður. Annar bakpokinn er orðinn fullur af hverskonar galdrastöffi fyrir sýninguna, tilberinn vel dúðraður í bóluplast sem sumum finnst gaman að sprengja og skinnið, bækur, bæklingar og margt fleira er komið á sinn stað í farangrinum.

Nú fer ég að pakka í hinn bakpokann. Í hann set ég persónulega muni s.s. nærföt og önnur hlífðarföt, tannbursta, rakvél, "gospillur" (he-he Jóka), og svona venjulegt stöff sem maður tekur með sér til útlanda.

Allt fer að verða klárt og ég varð kátur þegar ég opnaði bakpokann minn og fann Heineken flösku óopnaða. Ég opnaði hana til að svala mér á.

Lífið er fullt af ánægjulegum atvikum.
Ble-si
Á morgun ætla ég til Þýskalands. En fyrst ætla ég til Englands. Þaðan fer ég svo til höfuðborgar Þýskalands, gisti þar eina nótt og fer svo árla með bílaleigubíl til Hannover. Þar verð ég í nokkra daga eða allt þar til ég tek mig upp og fer til Kölnar og þaðan til Paderborn og loks til baka til Berlínar.

Þar til ég flýg til Englands á morgun og þaðan til Þýskalands þarf ég að gera eitt og annað.
Ble-si
Gott er að vakna glaður og hress.
Ég ætla ekkert að bölva í dag. Því þá fer allt til andskotans og það vil ég fjandakornið ekki.
Ble-si.

02 febrúar 2004

Mér leiðist bókhald. Mikið lifandi skelfingar leiðist mér bókhald. Stundum verða hlutirnir svo flóknir að ég botna hvorki up né niður í þeim og sé engan greinarmuna á debet eða kredit. Annars er ég ekki viss um að þeir séu neitt sérstaklega flóknir - ég veit bara ekkert um bókhald!! Og það er drullustressandi - sérstaklega um áramót þegar allt er í pati og ég nötra bara og skelf af hræðslu.

Þessvegna keypti ég rándýrt bókhaldsforrit í dag - svo það sé hægt að halda utan um fjármál Strandagaldurs af einhverju viti. Því þau eru orðin býsna flókin með öllum stigum virðisaukaskatts, tekjum og gjöldum og vaxtagjöldum og vaxtatekjum auk þess sem skattayfirvöld hræða og hræða launagreiðendur með hótunum um harðari aðgerðum ef launabókhald er ekki í fullkomnu lagi miðað við óskiljanlegar reglur frá Helvíti. Ég held það séu of margir starfsmenn hjá skattayfirvöldum og það þurfi að finna eitthvað handa hverjum og einum þeirra að gera.

Nú-nú - og svo botna ég bara ekki neit í þessu fjárans bókhaldsforriti. Það er flóknara en að koma tunglferju til Júpíters á sólarhring. Andskotinn hafi það bara!

Ekki veit ég hvernig ég væri í skapinu núna ef ég hefði ekki tekið upp á því að fara í sund á hverjum degi á laugardaginn. En best að ég upplýsi það að ég er kominn með harðsperrur eftir þessa fáránlegu bjálfalegu líkamsþjálfun. Synd eins og fífl fleiri hundruð metra á morgnana og hleyp á einhverju skrattans hlaupabretti fleiri djöfuls mílur. Svo þarf ég að fara til Þýskalands á miðvikudaginn og það er allt í pati vegna þess að ég sit fastur í þessu bókhaldi frá Helvíti og skattapappírarnir eru veðurtepptir í Bjarnarfirði, jafngáfulegt og það er, og því fæ ég þá allt of seint í hendur og það eru virðisaukaskattaskil um þessi mánaðarmót.
Ég held ég fari bara ekki neitt!

Fjandaskottið! Það er ekki furða að manni klæji í rassgatið.
Ble-si.

01 febrúar 2004

... svo lauk handboltakeppninni í Slóveníu.

Þetta er búið að vera mjög gaman í alla staði. Ég er ánægður með úrslitaleikinn milli Þjóðverja og Slóvena og gaman að sjá loks lið og áhorfendur sem fagna jafn stórkostlegum árangri sem silfri í svona keppni. Það er náttúrulega frábær árangur fyrir Slóvena. Þjóðverjar unnu verðskuldaðan sigur og voru langtum betri - auk þess sem það er löngu kominn tími á það að þeir vinni aftur til verðlauna á stórmóti. Frábærir handknattsleikmenn! Ég gleðst yfir því sérstaklega að frændur okkar Svíar fóru ekki lengra en raun bar vitni og ég gleðst líka yfir bronsverðlaunum Dana. Það er skemmtilegt. Ég er líka ánægur með íslenska landsliðið þó þeir hafi ekki náð langt. Ég nefnilega held með þeim í gegnum súrt og sætt. Ég held með þeim alla leið til helvítis, sama hvað gengur á, og býð þá alltaf velkomna heim og þakka þeim fallega fyrir mig.

Aldrei dytti mér í hug að hneykslast eða hæðast að sonum mínum þó þeir næðu ekki alveg þeim árangri sem þeim þeir gerðu tilraun til. Fráleitlega. En aftur gleddist ég með þeim yfir að hafa tekið þátt, svo ég tali ekki um þegar þeir verða sér og sínum til sóma jafnt innan sem utan veggja heimilisins.
Ble-si
Sund 300 metrar, skokk 2,5 km og ljós 20 mínútur í morgun frá klukkan 9:00-10:00.
Svo heim að éta snúð og drekka kaffi. Núna - vinna og vinna. Fer til Þýskalands á miðvikudaginn.
Ble-si