15 desember 2002

Úff-púff. Lenti á ölæði í gærkvöldi. En ég læt alveg vera að skrifa um það hér. En þrátt fyrir allt er heilsan góð nema ég held að ég hafi fengið hálsbólgu í skóinn.
Ble-si

14 desember 2002

Jæja - þá er ég búinn að fullnægja Jórunni í bili og hún er náttúrrulega ofsakát með baðið sitt svo ég gat farið að sinna öðru. Ég ætla nú að byrja á því að fara í mína eigin sturtu og þrífa mig a bit - svo fer ég á afvikinn stað í blautri miðborg Reykjavíkur eftir að ég er búinn að þurrka mig.
Þá er kominn laugardagur. Eftir nákvæmlega eina viku vöknum við fyrsta morguninn í Danmörku. Nú er ég að súpa á Gevalia morgunkaffinu og þegar bollinn er tómur þá fer ég í vinnugallann og rölti yfir til Jórunnar og klára baðherbergið hjá henni. Ég flísalagði það í október og á eftir að leggja lokahönd á verkið. Skömm af því. Verð að klára það fyrir jól - og þess vegna er dagurinn í dag alveg upplagður í það.
Það er ennþá sama gamla góða hitabylgjan hérna fyrir utan gluggann. Það er eins gott því Stúfur kemur í dag og hann á mjög erfitt þegar snjór nær upp í ökla á venjulegu fólki.
Engin ummæli:

13 desember 2002

Ef þú heldur að jólasveinar séu virkilega ekki til smelltu þá hér.
Þarna hefuru það!!
Ble-si
Ég vaknaði undir morgunsárinu með vægan verk undir því og ákvað því að fara á bráðamóttökuna. Ég var náttúrulega logandi hræddur og ætlaði varla að þora inn á stofuna. En að lokum eftir samræði við lækninn þá féllst ég á að koma sjálfviljugur inn. Þar leiddi skoðun á mér í ljós að ég er unglingspiltur. Læknirinn var steinhissa og ætlaði að recepta mér einhver lyf út á unglingaveikina en ég harðneitaði því og sagðist ekki taka lyf, rétt magnyltöflur þess á milli.
Læknirinn tók ekki annað í mál en ég stútaði úr einu meðalaglasi með allavega litum pillum þarna á stofunni fyrir framan hann en ég tók það svo nærri mér að ég táraðist og hef grátið stöðugt síðan. Og hef líka verið niðurdreginn. En eftir að hann hafði róað mig um stund þá hafði ör hjartslátturinn alveg stöðvast svo mér leið mikið betur. Ég bað lækninn um að líta á mig aftur og sannreyna hvort ég væri bara unglingspiltur og þá kom í ljós að ég er 56 ára gamall kvenmaður, þrekvaxin og vöðvastælt og bróðir minn í ofanálag. Ég vona ég fái jólagjöf frá þessum nýja bróður mínum.

12 desember 2002

Jæja, ég er búinn að taka ákvörðun um næstu skoðanakönnun. Hún fjallar um Byggðasafnið á Reykjum. Ég hef nefnilega undanfarið verið að velta stöðu þess fyrir mér. Mig langar að taka undir það með Jóni Strandaálfi á Kirkjubóli að sveitarstjórnarmenn á Ströndum eru ekki alveg að horfa til framtíðar varðandi Byggðasafnið á Reykjum. Fyrir rúmum 35 árum var tekin ákvörðun um að Strandamenn og Húnvetningar skyldu hafa samstarf með uppbyggingu og rekstri byggðasafns sem væri staðsett á skólasetrinu á Reykjum í Hrútafirði. Í þá tíð stunduðu ungir Strandamenn nám á Reykjum og settu mikinn svip á skólann. En eftir því sem árin hafa liðið hafa þeir sveitarstjórnarmenn sem á eftir hafa komið breytt um áherslur smátt og smátt, þannig að nú er svo komið að það eru engar áherslur eftir í varðveislu söguminja. Ekki veit ég hvað hefur breyst. Er það hugsanlegt að nútímafólk sé svo sjálfhverft að það vilji bara alls ekki leiða hugann að fortíðinni?
Byggðasafnið á Reykjum hefur undanfarin ár tekið stórum breytingum og mælist ég til þess að sem flestir líti þar við og sjái hvaða natni er lögð þar t.d. við hákarlaskipið Ófeig frá Ófeigsfirði á Ströndum - sem er aðalgripur safnsins og sómi þess. Ég leyfi mér að efast um að jafnglæsileg umgjörð væri í kringum það, ef það yrði staðsett einhversstaðar vestan megin við Húnaflóa. Auk þess sem það væri margfaldlega kostnaðarsamara fyrir sveitarfélög á Ströndum. Það skal tekið fram að sveitarfélög á Ströndum hafa alls ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart safninu í fjölda ára. Byggðasafnið á Reykjum er auður sem hægt er að nýta mikið betur en gert er og ég er sannfærður um að Pétur forstöðumaður safnsins er reiðubúinn að taka þátt í hvers kyns sýningarhaldi á Ströndum með munum af safninu, og færa þá þannig "heim". Hefur einhver sveitarstjórnarmaður á Ströndum einhverja hugmynd um út á hvað safn gengur? Það er annað og meira en að stilla upp gömlum hlutum á hillu til sýningar. Mikilvægasti þátturinn og sá minnst sýnilegi er forvarslan sem söfn eru skuldbundin til að sinna. Það er sérfræðikunnátta sem kostar peninga. Annars grotna hlutir bara niður og eyðileggjast og hverfa. Kannski vilja menn það bara og kaupa eitthvað fjöldaframleitt plast frá Suður-Kóreu í staðinn - og benda á það með lotningu og segja:
- Sjáðu, þetta er handsmíðaður askur frá 17. öld - hagleikssmíð ekki satt? Einu sinni voru þeir út timbri en þeir askar eru víst útdauðir.
Eigum við ekki bara að skipta um tungumál líka?
Góðan og blessaðan daginn. Það er ennþá sama einmunablíðan hér á þessu landi. Veðrið er svo gott að maður skilur hvorki í þennan haus né hina. Fer að mála núna og flikka upp á eitt og annað. Á meðan ætla ég úthugsa nýja skoðanakönnun. Þessi er orðin svoldið þreytt. Tilllögur eru vel þegnar. Þær má skilja eftir í gestabókinni. Tengill inn á hana finnst hérna.
Fjórhöfði.

11 desember 2002

Mér sýnist ég vera að klúðra þessu aftur - nú er allt í hástöfum hér fyrir neðan? Hvað er eiginlega að gerast með mig??
Allt í sóma. Er að bíða á meðan málningin þornar aðeins - síðan tek ég aðra umferð. Ég er nefnilega að leggja lokahönd á þessar skrifstofur á 3.hæðinni sem ég hef verið að hlaupa í öðru hvoru þessa vikuna og græja. Setti hurðina upp í kvöld og er að mála hana.
Svo var ég að hugsa - það er komið langt fram í aðventu og ég hef ekki gert neitt jólalegt ennþá. Það jólalegasta sem ég hef komið nálægt var í gærkvöldi þegar ég fór í kvöldgöngu niðrí bæ að skoða jólaskreytingar í gluggum. Það var ansi notalegt að rölta milli glugga á fámennri verslunargötunni, spegla mig í rúðunum og skilja eftir móðublett. Fékk mér einn öl á Kaffi List áður en ég rölti heim. Hlakka til að fara til Danmerkur. Það er alltaf jólalegt á aðalgötunni í Horsens og þar er líka jólajárnbrautalest fyrir börnin stútfull af jólasveinnum. Svoldil stemning. Jæja - málningin fer að vera klár til að fá aðra umferð.
Ble-si.
Jæja - þá er síðan að fæðast aftur í upprunalegri mynd - en ennþá vantar eitthvað á þetta. Mér finnst þetta letur of stórt. Ég man ekkert hvernig ég gerði þetta í vor þegar ég pikkaði hérna fyrst.
Algjör skandali!!!
Nú tókst mér að eyðileggja síðuna í einhverju æðiskasti við að hjálpa öðrum.
Hvað kennir þetta manni?
Að gera aldrei nokkrum manni greiða og þykjast ekki að vera annar en maður er.
Ég verð að byrja allt upp á nýtt og þangað til verð ég fýlu og öll skemmtilegheit liggja niðri.
Fjárinn hafi þetta bara!!!
Ble-si.
Skandali!
Eins og ég er búinn að röfla yfir í nokkrar vikur þá bara finn ég alls ekki vegabréfið mitt. Því ákvað ég að gera skurk í því í dag því tíminn líður. Svo ég fór í ljósmyndun sem kostaði 1.600 kall og sótti svo um nýtt vegabréf. Þá gerðist skandalinn.
Ég þurfti að punga út 9.200 krónum!!!
9.200 krónur!! Það má fá mörg hangilæri fyrir það.
Og allt vegna þess að ég er degi of seinn og auk þess regin-sauður og þarf því svokallaða flýtimeðferð sem er helmingi dýrara. Ef ég hefði álpast til að gera þetta í gær þá hefði vegabréfið kostað mig 4.600 krónur!!!
Ríkið og hið opinbera er sífellt að nauðga manni. Fjárinn.
Þannig að Lottó-gróðinn fór fyrir lítið.

10 desember 2002

Jæja. Það er nefnilega það. Svona fór nú skoðanakönnunin um frammistöðu Landsvirkjunar. En hvorki fleiri nér færri en 19 manns tóku þátt. Spurt var: Hvernig stendur Landsvirkjun sig í virkjanaframkvæmdum á hálendinu?
Það er frekar erfitt að ráða í úrslitin, því 70% þjóðarinnar hreinlega þorði ekki að svara. Það segir mér að 70% þjóðarinnar álíti að fæst orð beri minnsta ábyrgð og vill því vera örugg um það að vera ekki sett í einangrun á Litla-Hraun eða Njarðvíkurskóla. Þetta segir nú kannski mest um traustið á íslensk stjórnvöld.
Ef ég reyni að ráða í restina þá vill 10% þjóðarinnar meina að Landsvirkjun standi sig hörmulega. Það er líka erfitt að ráða í það. Hvað á fólkið við? Að Landsvirkjun ætti bara að virkja sama hvað hver segir eða á það við að Landsvirkjun sé með frekju og yfirgang á hálendinu.
5% þjóðarinnar finnst Landsvirkjun standa sig grátlega sem er auðvitað sorglegt og önnur 5% þjóðarinnar telur Landsvirkjun standa sig hlægilega sem ber eingöngu vott um lélegan húmor.
Samtals 10% þjóðarinnar skiptir á milli sín fifty/fifty að Landsvirkjun standi sig ágætlega annars vegar og snilldarlega hinsvegar - svo ég geri bara ráð fyrir því að það fólk hafi bara ekkert verið að fylgjast með, en vilji samt láta það líta þannig út að það hafi einhverjar skoðanir.
Niðurstaðan úr þessari skoðanakönnun er því sú að ég snýst ennþá í hringi og veit eftir sem áður ekkert í þennan haus eða hinn.
En þá ætla ég að upplýsa um Lottó-vinninginn mikla. (Lúðraþytur)
Það tilkynnist hér með að ég vann 580 krónur. Það er ekkert mjög mikið - en 580 krónur eru heldur ekki bara gripnar úr skítnum. En ef ég hefði unnið fleiri fleiri silljónir? Hvað þá? Hvernig hefði ég brugðist við því. Þegar ég hugsaði málið þá komst ég að því að það skiptir kannski minnsta máli hvernig ég myndi bregðast við. En hvernig mynduð þið bregðast við? Það er stóra málið. Um það fjallar næsta skoðanakönnun sem lítur dagsins ljós núna og stendur næsta sólarhring.