30 apríl 2003

Þá eru stóru mál þessarar viku að verða nánast frágengin svo Galdrasýningin getur farið að anda léttara í bili. Málskotið til stjórnar Byggðastofnunar alveg að verða klárt og umsóknin til Opinnar menningar er svo að segja alveg klár. Bara eftir að kvitta nafnið mitt undir og póstleggja það.
Gaman er af því strípalingur.
Nú er föstudagslíki og maður ætti eiginlega að vera að fara að gera eitthvað skemmtilegt, sem ég er ekki að fara að gera. Á morgun er 1. maí og þá ætti ég að fara í kröfugöngu, sem ég er ekki heldur að fara að gera.
Ble-si
Úti er snjór og slydda
en það er sko alltílæ.
Því ég er algjör lydda
og það er að koma maí.

Ble-si

29 apríl 2003

Morrinn sjálfur!
Ég er búinn að lofa einhverju andskotans galdrauppistandi frá Helvíti á einhverri ferðamálakynnningu í Smáralind um helgina, laugardag og sunnudag. Ég sem ætlaði aldrei í þessa Smáralind.
Ég veit ekki á hvurjum fjáranum ég ætti að taka upp á. Kannski gerir það bara ekkert til því líklega finn ég þessa asnalegu Smáralind hvort eð er aldrei.
Þetta er agalegt.
Ég segi meira frá síðar ef ég kem hausnum í gang, sem er erfitt, því ég hugsa eingöngu um fjárhagsáhyggjur galdranna og reyni að skrifa göróttar setningar sem leiða peningamenn á réttar brautir.
Ég ætla allavega að vera fyndinn.
Ble-si
Ég er handviss um að tíminn er hættur að líða og þar með að klukkan er stop. Gula fíflið skín ennþá innum sama gluggann hjá mér eins og hún gerði eldsnemma í morgun - svo ég sé ekkert - og geri þar af leiðandi ekki nokkurn skapaðan hlut af viti.
Ble-si
Í dag er svo mikil sól og blíða að ég hugsa að ég geti ekki gert neitt af viti í dag. Það fer öll orkan í að píra augun gegn sólinni sem skín í gegnum gluggann og reyna að sjá hvað ég ætti að vera að gera.
Það líður vonandi hjá.
Ble-si

28 apríl 2003

Ég fékk svo fjári skemmtilegan tölvupóst frá einni Hólmavíkurmærinni og má til með að setja niðurlagið úr því hér til geymslu og skemmtunar.
...Annars, til gamans, hef ég verið að leika í þýskri kvikmynd öðru hvoru síðustu mánuði, hún er að hluta tekin á Keflavíkurflugvelli. Í einu hléinu spyr ein þýska stelpan mig hvaðan ég sé og ég segist vera frá Hólmavík og að það sé á Ströndum á norðvesturlandi. Hún spyr þá hvort ég sé virkilega frá Hólmavík og ég segi já. Þá kallar hún á allt liðið og segir: She´s from the place of magic and witchcraft. Þar með varð ég allt í einu miðpunktur allrar athyglinnar (ég er nú bara í aukahlutverki í þessari mynd) og allir fara að spyrja mig út í galdrana, hvað ég kunni og svo framvegis. Vefurinn er greinlega alþjóðlegur og ég held að þjóðverjarnir séu nokkuð vel með á nótunum.
Kveðja,
...
Ble-si
Ja, margt er skrítið í kýrhausnum. Það er líklega ekkert til, hvorki á himnaríki né jörðu, sem Ísfirðingar nenna ekki að rausa yfir og rífast um.
Ble-si

27 apríl 2003

Jæja, kom að norðan fyrir klukkustund. Fínn túr og aðalfundur Strandagaldurs 2003 yfirstaðinn. Góður fundur og margar ákvarðanir um ekkert teknar. Galdrasýningarhúsið á Klúku (Kotbýli kuklarans) lítur vel úr. Það verður fjör ef það verður einhverntíman hægt að klára það.
Það snjóaði fyrir norðan og mér finnst lóur heimskar. Ef ég væri lóa þá héldi ég mig á Skotlandi í stað þess að vera að fljúga hingað norður og niður til að fá mér einn drátt til að geta flogið aftur til baka um haustið þegar ég væri búinn að jafna mig á honum.
Veit ekki annars - kannski myndi maður fljúga á heimsenda ef maður ætti von á einum góðum. Skal ekki segja. En allavega er ég feginn að vera ekki farfugl. Skárra að vera furðufugl.
Ég ætla að stofna Galdraskóla á Ströndum á næsta ári. Það verður fjör. Ég útlista starfsemina seinna.
Atli minn læsti sig í lyftunni hérna í húsinu í gær. Ég er alveg hissa á því vegna þess að drengurinn þorir aldrei lyftu. Líklega fer hann aldrei í lyftu aftur. Hann hringdi í mig úr lyftunni alveg í losti. Að endingu þá braust hann út úr lyftunni áður en hann kafnaði. Ég er feginn að hann kafnaði ekki. Það hefði nú ekki verið gaman að eiga kafnaðan son. Ó,nei.
Jæja- gúten abent, æne slabent.
Eitt enn - það er umfjöllun á mbl.is um sýningu Leikfélags Hólmavíkur á Sex í sveit í Trékyllisvík í gærkvöldi.
Þetta er snillingar.
Ble-si

26 apríl 2003

Ég er að græja mig af stað norður á Strandir. Jórunn var svo væn að lána mér bílinn sinn svo mér er ekki til setunnar boðið. Það er gott að eiga svona góða að. Takk fyrir kærlega Jórunn.
Ég vona bara að það eigi ekki eftir að færa bílinn til skoðunar því mér skilst að héraðslögregluþjónarnir fyrir norðan sé í því að bögga vegfarendur eins og þeir mögulega geta um þessar mundir.
Svo var ég að muna að ég verð að fara að sækja mér nýtt ökuskírteini. Það er nefnilega búið að vera týnt núna í fjögur ár eða lengur. Þetta gengur bara ekki lengur.
Allavega - ég er farinn að setja eitt og annað oní tösku og ætla svo að fara að rúlla mér af stað í rólegheitum. Ég vona að einhverjir puttalingar verði á vegi mínum. Mér finnst gaman að taka þá upp í. Nema þá sem lykta mjög illa. Ég hef einu sinni lent í því.
Lúlli er farinn til sinna heima. Ég sakna hans svoldið.
Ble-si

25 apríl 2003

Allir að muna að það er ungi klukkan fimm. Eins og alltaf á föstudögum.
Ungi klukkan 17:00-19:00 á Litla ljóta.
Ble-si
Ég stefni að því að fara norður á Strandir um helgina með einhverjum ráðum. Er bara ekki búinn að finna far ennþá. Bíllinn minn er náttúrulega bilaður ennþá og það lítur ekki út fyrir að hann komist í lag á næstunni. Ekki veit ég hvenær, eða hvernig það mál fer. En ég er samt búinn að fá lánaðan bíl ef út í það færi en þá verð ég líka að koma til baka á sunnudagskvöldið. Ætli það verði ekki bara þannig. Þó einhver mótmæli því hástöfum.
Mér sko alveg sama. Helduru að mér sé ekki sama? Mér er sko alveg sama.
Lúlli er sofandi ennþá.
Ble-si

24 apríl 2003

Þetta er fyrsti sumardagurinn fyrsti með sumarblíðu en ekki rigningu - ef ég man rétt. Mikið væri nú gaman að eiga bát og geta farið að sigla á svona dögum. Helst bát með stýri og sæti. Það er bátasýning í bátabúð hér rétt hjá. Kannski ég skreppi þangað í göngutúr með Lúlla og kaupi einn útlitsgallaðan. Með stýri og sæti.
Ble-si
Lúlli er í heimsókn hjá mér. Hann kom í gær og var svolítið ráðvilltur til að byrja með. En það tók ekki langan tíma þar til hann var búinn að kanna alla króka og kima og sætta sig við stöðuna. Honum finnst skemmtilegast að sitja útí gluggunum og horfa á starrana. Hann langar svoldið að leika við þá.
”SmelliðLúlli er ekki alveg búinn að átta sig á því ennþá hver er húsbóndinn á heimilinu. Mér fannst það svolítið óþægilegt þegar hann náði af mér sófanum í gærkvöldi, svo ég varð að liggja allur á ská meðan ég horfði á sjónvarpið - því hann hreyfði sig hvergi. Svo fer það svolítið í taugarnar á honum þegar ég sit við tölvuna - þá stekkur hann upp á borðið við hliðina á mér og hendir penna niðrá gólf. Ég hef ekki haft undan að teygja mig eftir pennanum.
Ég er svoldið mikið að hlaupa á milli herbergja og athuga hvort allir gluggar séu ekki örugglega lokaðir.
Já, það er svoldið mikil vinna að vera með Lúlla í heimsókn. En hann er þægur. Ég hef bara áhyggjur af því hvað hann borðar lítið. Hann vill ekki einu sinni lifrarkæfu. Það finnst mér vera skrítin kisa.
Svo óska ég öllum gleðilegs sumars.
Ble-si