10 apríl 2003

Nú læt ég það berast til allra sem ég hefi umgengist undanfarin misseri að framvegis verður farið í öl á föstudagseftirmiðdögum - á Litla andarunganum við Lækjargötu þar til annað verður ákveðið - klukkan 17:00 - 19:00 á föstudögum. Þangað eiga allir að mæta sem geta, en enginn verður þó skyldugur til þess.
Enginn verður skilinn útundan því allir geta mætt - enginn kladdi verður til að merkja við - einungis um að ræða föstudagsöl fyrir þá sem kæra sig um.
Ég endurtek það að enginn verður skilinn útundan og að öllum er í sjáfsvaldi gert að mæta. Það verður spennandi að sjá hvort einhverjir láta sjá sig. Ég veit að ég kem - og að Jórunn kemur - og að Áki kemur - og ég er viss um að Rakel mætir líka öðruhvoru - einnig að Davíð og Lína eiga eftir að reka inn nefið. Og margir fleiri því það eru allir velkomnir og enginn er skilinn útundan. Þetta er nefnilega öllum í sjálfsvald sett.
Er mögulegt að tala skýrar?
Ble-si

09 apríl 2003

Nú er bara að muna eftir að hlusta á Samfélagið í nærmynd á Rás 1 á morgun fimmtudag kl. 11:03. Þar verður kosningavefurinn umtalsefnið. Einnig á svæðisútvarpi Vestfjarða í kvöld.
Ble-si

08 apríl 2003

Eftir mikið puð tókst mér að hafa uppá Skjá einum aftur. Ég týndi stöðinni einhverntíman í byrjun desember þegar loftnetið mitt datt í gólfið. Þetta er verri stöð en mig minnti. En gott að hafa möguleika á að skipta yfir á hana þegar sýndar eru andskotans íþróttir frá helvíti á hinni stöðinni.
Ég er búinn að éta yfir mig af kexi í kvöld og kominn með kexeitrun í kjölfarið.
Ég er að hugsa hvort ég geti ekki tengt sjónvarpið mitt við gervihnattadiskinn sem er hérna uppá þaki. Ég er búinn að komast að því að hann er nothæfur. En ég veit ekki hvort ég þurfi að vera með einhvern sérstakan magnara eða eitthvað.
Æ, ég er syfjaður, en nenni ekki uppí rúm. Það er alltaf þannig að ef ég fer syfjaður uppí rúm fyrir miðnætti þá sofna ég í fjóra og hálfa mínútu og glaðvakna síðan. Það er óþolandi. Það er líka óþolandi að klukkan á blogginu mínu er klukkutíma á undan og að það er ekki nokkur leið að stilla hana.
Ble-si.
Ég er glaður og kátur. Kosningavefurinn er nefnilega að svínvirka. Það var umfjöllun um hann í fréttatíma RUV í gær klukkan 17:00 sem birtist síðan á Textavarpinu. RUV.IS er með tengil inn á síðuna og Textavarpið fjallar um uppátækið. Vefritið Deiglan.com fjallar líka um kosningavefinn með tengli auk þess sem ágæt grein birtist í Fréttablaðinu í morgun sem birtist einnig á Visir.is með tengil inn á síðuna. Bæjarins besta fjallar að sjálfsögðu líka um ráð galdramanna.
Útvarpsstöðin Bylgjan ætlar svo að taka við mig viðtal klukkan 16:20 í dag um hvernig best sé að nýta forn ráð í nútíma kosningabaráttu. Þá kem ég að í leiðinni hvatningu til hlustenda að leggja land undir fót um páskana og heimsækja sýninguna, en hún verður opin laugardaginn 19. apríl frá kl. 13:00 - 18:00.
Það hafa heimsótt heimasíðu Galdrasýningarinnar 120 manns það sem af er degi.
Ég má bara vera býsna kátur með mig. Er þaeki?
Ble-si

07 apríl 2003

”SmelliðKukl og kosningar! Það er málið.
Fréttablaðið stóð sig með sóma.
Ekki veitir af að auka kjörþokka frambjóðenda.
Svo mikið er víst.
Ble-si
Svo sagði RUV frá nýjasta kosningavefnum. Þeir hefðu mátt vanda sig örlítið betur. Þá er það bara spurningin hvort þeir standa sig á Fréttablaðinu á morgun eins og þeir lofuðu.
Ble-si

06 apríl 2003

Kosningavefur Strandagaldurs er kominn í loftið. Nú er það bara spurningin hver nær bestu tökum á aðferðunum til að ná hylli okkar aumu kjósenda.
Ble-si

05 apríl 2003

Síminn vakti mig í morgun klukkan hálfníu. Ég svaraði honum syfjulegri röddu. Í símanum var karlmannsrödd sem sagði:
- Heyrðu, ég ætla að skrá mig á námskeiðið hjá ykkur.
- Ha? - segi ég. Hvaða námskeið?
- Er ég að hringja í vitlaust númer? Er þetta ekki Galdrasýningin?
- Jú jú, - segi ég.
- Ármann sagði mér að þið væruð með námskeið í göldrum þarna fyrir norðan.
- Ha? - segi ég. Hvaða Ármann?
Svo útskýrði ég fyrir honum að Galdrasýning á Ströndum stæði ekki fyrir praktískum námskeiðum í göldrum. En hann var nú ekki alveg að gefa sig því hann virtist trúa þessum Ármanni betur en mér. Sagðist auk þess skilja það að við vildum ekki vera að flíka með þetta of mikið og heimtaði að fá komast inn á eitt af þessum lokuðu námskeiðum á Ströndum - sem hann vissi að væru fyrir hendi. Ég reyndi þá að róa manninn niður og gerðist ögn dularfyllri og spurði hann hvað stæði til hjá honum.
- Mér líst ekkert á þessar andskotans skoðanakannanir, sagði hann þá. Vinstri grænir eru að tapa flugi og missa allt niðrum sig og það gengur ekkert hjá þeim hér á Suðurlandi. Ég var bara að hugsa hvort ég kæmist ekki inn á eitt af þessum námskeiðum hjá ykkur til að kveða niður hina stjórnmálaflokkana einhvernvegin. Senda einhverja helvítis óáran á sjálfstæðisflokkinn og samfylkinguna.
Mér var farið að þykja þetta ansi skemmtilegt, reisti mig upp í rúminu og sagði:
- Mér litist nú best á að koma andskotans framsóknarflokknum frá helvíti fyrir kattarnef.
- Ha? hváði hann alveg steinhissa. Ég hefði nú aldrei lagt í að nefna það að fyrra bragði. Eru ekki allir á Ströndum framsóknarmenn? Ég var alveg viss um að það væri ástæðan fyrir því að framsóknarflokkurinn hefur verið við völd nánast óslitið síðustu 30 árin. Því það er göldrum líkast hvað þessi dvergflokkur hefur náð miklum sporslum til sín. Ertu viss um að það sé ekki af ykkar völdum?
Ég gat svosem ekkert verið viss um það, sagðist ekki hafa nákvæmar upplýsingar um það hvað bændur á Ströndum aðhefðust í frístundum sínum. En ég skyldi reyna að aðstoða hann lítillega. Við værum nefnilega með í fórum okkar sérstaka galdrastafi sem hann gæti nálgast á heimasíðunni seinna í dag.
- Hvað ertu að segja? Eru það einhverskonar rúnir þá?
- Já já, - svaraði ég. Þetta eru einskonar rúnir eða galdrastafir til málafylgju. Þú skalt rista þá á eikarfjöl og bera í skurðinn blóð úr vinstri stórutánni og geyma fjölina síðan á milli klæðanna. Svo þarftu að vera duglegur að sækja framboðsfundi hjá óvinunum og ef þú hefur meðhöndlað galdurinn rétt, þá munu fundarmenn snúast á þitt mál.
Ég lagði áherslu á að ef hann gerði eitthvað rangt við framkvæmdina þá væri hætta á að galdurinn snerist gegn vinstrihreyfingunni Grænt framboð. Svo það væri vissara fyrir hann að vanda sig. Ég sagði honum líka að það væri af og frá að ég færi að kenna honum að framkvæma einhverjar sendingar. Því ég hefði áhyggjur af því að kosningabaráttan ætti eftir að verða þvílíkt forarsvað að það væri alveg nóg þó það væru ekki líka framliðnir um hvippinn og hvappinn í einhverjum drulluslag. Þeir væru heldur ekki lengur með kosningarétt.
Hann var sáttur við þetta og kvaddi en sótti aftur fast á um að komast á einhver af þessum leyninámskeiðum sem Galdrasýning á Ströndum stendur fyrir.

Ég er að velta því fyrir mér hvort við getum ekki gert kosningabaráttuna að einskonar féþúfu fyrir Strandagaldur.
Ble-si

04 apríl 2003

Þeir sem óska eftir að ég hafi samband við áður en ég fer í föstudagsbjórinn seinnipartinn á eftir, vinsamlega skrái sig hér að neðan. Athugið að klukkan er 13:43 en ekki 14:43 svo það er ennþá tími til að skrá sig.
Ble-si
Það er rigning. Veður vott. Pollar á strætum. Ef ég væri fiskur þá færi ég út að synda.
Auk þess er klukkan klukkutíma á undan á blogginu mínu og ég get ekki lagað það. Það fór allt í rugl þegar þeir breyttu tímanum í Evrópu um síðustu helgi.
Ble-si

03 apríl 2003

Ég er að spá í að skella mér á tilboð Iceland Express sem ég fékk frá þeim í tölvupósti og fara til Köben um helgina fyrir 12.000 krónur. Frá laugardegi til mánudags. Er þetta ekki bara ágætis hugmynd? Gisti svo hjá Fanneyju, tæmi nokkrar ölkrúsir með henni og fæ mér nokkrar pulsur og flýg svo heim.
Er þetta ekki brilliant?
Ble-si
Sá sem ranglæti sáir, uppsker óhamingju.
Svona var nú málshátturinn í fyrsta páskaegginu sem ég er búinn að éta fyrir þessa páska. Það verður spennandi að sjá hvað næstu þrjátíu málshættir ráðleggja mér.
Ble-si

02 apríl 2003

- Það er bara ekkert að virka bloggið. Það birtist bara ekkert af því sem ég hef skrifað undanfarna daga. Hver snilldarfærslan á fætur annarri er horfinn yfr móðuna miklu. Og aldrei þær koma til baka. Ég sé og les að fleiri hafa átt í svipuðum vandræðum. En færslurnar hafa þó birst um síðir hjá þeim. Svo ég verð bara að bíða og sjá.
Ble-si