07 febrúar 2003

Viðskipti | 7.2.2003 | 14:43
2,3 milljarða króna hagnaður Búnaðarbanka
Hagnaður Búnaðarbanka Íslands hf. á árinu 2002 var 2755 milljónir króna fyrir skatta en 2288 milljónir að teknu tilliti til reiknaðra skatta. Hefur hagnaður bankans aldrei verið meiri...

Viðskipti | 7.2.2003 | 15:03
Hagnaður Landsbankans rúmir 2 milljarðar á síðasta ári
Hagnaður Landsbanka Íslands hf. á árinu 2002 nam 2549 milljónum króna fyrir skatta, en að teknu tilliti til skatta nam hagnaður bankans 2028 milljónum króna...

Þetta eru eiginlega Ekki fréttir. Þessir bankastjórnendur væru ljótu klaufarnir í viðskiptum ef þessi hagnaður er ekki bara sjálfsagt mál miðað við vaxta- afgreiðslu og þjónustugjaldaokrið sem er leyft að viðgangast hjá þessum viðbjóðum andskotans.
Ble-si
Málbelgurinn er ekki alveg að virka um þessar mundir. Ég er búinn að komast að því að stundum er hann að valda einhverjum skaða hérna á síðunni - og tefur hana agalega. En það er samt ekki alltaf. Þetta er voða skrítið. Ég ætla því að hvíla málbelginn aðeins - en hann kemur aftur. Því mér finnst hann skemmtilegur.
Ble-si
svart & hvítt
ble-si

06 febrúar 2003

Á morgun þann 7. febrúar 2003 verður nákvæmlega eitt ár liðið frá því ég hóf að safna naflalói. Það hefur að vísu ekkert gengið neitt sérstaklega vel því ég á það til að gleyma því of oft að ég er naflalóa-safnari - en ég er þó komin með nokkur. Viljið þið sjá?.
Ég verð að reyna að standa mig betur á næstu 12 mánuðum. Það verður langt þangað til ég get prjónað mér húfu úr naflalói með þessu áframhaldi.
Ble-si
Ég las einhverju sinni litla grein í DV um Árna Johnsen þar sem hann fór inn á bílaþvottastöð að ræða við afgreiðslumanninn. En meðan hann var þar inni þá kom annar starfsmaður aðvífandi og setti upp stiga utan við dyrnar, prílaði þar upp og fór að þrífa rúðu. Árni Johnsen kláraði erindið með gusti - rauk af stað og reif upp hurðina sem hrinti niður stiganum svo mannvesalingurinn sem stóð í stiganum hrapaði ofaná Árna og handleggsbrotnaði. Árni féll einnig um koll og rotaðist um sinn.
Þá varð þessi limra til í kollinum á mér.

Hann liggur um hríð í roti
við hlið hans er annar í broti
Það gerir ei neitt
þó hann hafi sig meitt
það er sjaldgæft hann höfuðið noti.


Ble-si












ÓDÝRARI PRENTHYLKI
- þjónusta sem alltof fáir nýta sér
Ég mæli eindregið með því að kaupa prenthylki á þessari síðu. Ég er búin að versla þar í tvígang og spara mér þannig líklega 3.800 krónur. Auk þess sem prenthylkin eru talsvert ódýrari en gengur og gerist (rúmum þúsund krónum) þá er þar einnig frábær þjónusta í boði. Tveimur dögum eftir að pantað hefur verið, þá kemur maðurinn skokkandi með prenthylkin og afhendir manni þau - ofsakátur. Þá er hægt að borga honum hvort sem er með peningi eða með greiðslu í gegnum heimabanka.
Ég mæli með þessu - eindregið - eins og ég sagði í þriðja orði þessa pistils. Slóðin inn á síðuna er hérna.
Það er sko eitthvað vit í þessu.
Tökum þátt í að lækka verðið á prenthylkjum!!
Ble-si
Nei-nei-nei.
Nú er mér öllum lokið og mótmæli hástöfum græðgi og yfirgangi Búnaðarbankans. Það er ekki nóg með að bankinn leggi öll afgreiðslu- og þjónustugjöld með fullum þunga á okkur sem notum netbankann - bankanum til sparnaðar - heldur eru hann farinn að skuldfæra SMS-sendingar líka. 30 krónur stykkið!! Þjónusta sem hefur verið ókeypis til þessa.
Nú skora ég á alla sem hafa nýtt sér SMS-þjónustu Búnaðarbankans að hætta því hið snarasta.
Þetta er týpískt - skella á einhverjum gjöldun án þess að láta kóng né prest vita.
Fari Búnaðarbankinn bara til helvítis. Þessi viðbjóður andskotans.
Ble-si

04 febrúar 2003

Ég vesæll vei - hver voði og hörmung sár - er heil mín sál?
Fjárinn hafi það bara. Ég á afmæli eftir viku á morgun. Ég fer að drepast úr elli og á eftir að gera svo margt.
Ble-si
Drukkin á Þorrablóti
“Ég heimta þennan unga”
hún hrópar og bendir með stæl.
Upp í sig súra hrútspunga
hún stingur, þá bryður, svo sæl.

En hvað ég hlakka til að fara á Þorrablót.
Ble-si
Einn stolinn brandari á útlensku
This little boy and his grandfather are fishing. Granddad pulls out a beer and the little boy says "Grandpa, can I have one of those?" Grandpa asks "Is your penis big enough to touch your asshole?" to which the little boy responds "No." "Then you can't have one." A while later, the granddad pulls out a cigar and the boy asks, "Can I have one of those?" Grandpa asks "Is your penis big enough to touch your asshole?" to which the little boy responds "No." "Then you can't have one." Later on, Grandpa and Grandson go to the grocery store for food and each one buy a lottery ticket. Grandpa is unlucky, but the little boy says "I just won $50,000" Grandpa says, "Great, your going to split that with me, right?" The little boy asks, "Is your penis big enough to touch your asshole?" "Yes," says grandpa. "Then go fuck yourself"

OK - ég viðurkenni það - þessi var stolinn.
Ble-si

03 febrúar 2003

Best að skrifa pistil dagsins.
Ég gerði helling í dag. Ég er duglegasti maður í heiminum. Maggi kom - og fór. Hjólaði eftir nýjum Tilberaskírteinum. Skrifaði bréf. Hugsaði mikið. Hringdi nokkur símtöl. Skipulagði stefnumót á miðvikudaginn. Fór í bakarí og fékk mér snúð og sérbakað vínarbrauð. Lét einn hlut fara í taugarnar á mér. Jafnaði mig á því. Borgaði reikninga. Vann í fjárhagsdagbók Strandagaldurs. Borgaði einum reikning of mikið. Sá eftir því. Reykti of mikið. Skrifaði e-mail til Cordulu. Það var kalt úti. Bíllinn er ennþá bilaður. Vaskaði ekki upp því það vannst ekki tími til þess.
Um það bil svona var dagurinn hjá mér.
Ble-si

02 febrúar 2003

Nú er ég orðinn sannfærður um það. Það er samsæri í gangi hjá bönkunum gagnvart viðskiptavinum sínum sem nota debetkorta-reikninga. Þá erum við að tala um alla þjóðina. Ég hef verið að fylgjast með því undanfarna mánuði vegna þess að ég hef hægt og sígandi verið farinn að gruna það. Það er ekki nóg með að þeir séu að ræna okkur með vaxtaokri og ósanngjörnum einhliða ákveðnum þjónustugjöldum.
Hver getur verið ástæðan fyrir því að þegar farin er að minnka innistæðan á reikningnum að þá hægist verulega á því að færslur skili sér inn? Þegar nóg er inni á reikningnum þá skila þessar sömu færslur sér samdægurs.
Ég er sannfærður um það að bankarnir eru með eitthvað leynikerfi í gangi sem hægir sjálfkrafa á því að færslur skili sér inn þegar ráðstöfunarfé á reikningum er komið niður í einhverja vissa upphæð. Til þess að geta náð af venjulegum viðskiptavinum sínum 700 sektarkrónum á hverja færslu. Þetta verður mjög áberandi þegar maður fylgist með þessu í nokkurn tíma.
Og eitt enn.
Hvers vegna í ósköpunum er maður að greiða sama greiðslugjald af skuldabréfum (430 krónur hjá BÍ - helmingi minna hjá ÍB) þegar það er greitt í gegnum netbankann? Það er engin sanngirni í því frekar en öðru hjá þessum löglegu glæpastofnunum.
Ég er að hugsa um að fara að nýta mér hraðbankana í meira mæli og hætta að nota debet-kortið svona mikið.
Ble-si

01 febrúar 2003

Jahérna - fjárinn bara.
Leikurinn við Rússa er á svo ókristilegum tíma fyrir bjór að ég veit svei mér ekki hvernig þetta fer. Ég vildi ég væri í DK. Þá væri þetta ekki vandamál.
En ég verð að spá.
Við vinnum með 3 mörkum ISL 31:28 RUS.
Ég væri bjartsýnni ef ég drykki öl fyrir klukkan 16:00 á daginn.
Ble-si