Sko Atla minn!
Hann tók að sér að auglýsa strákaskart og tók sig bara vel út í Mogganum á föstudaginn. Ég er bara mjög stoltur af honum.
Smellið á myndina til að stækka hana.
Ble-si
19 janúar 2003
18 janúar 2003
Maður - maður.
Fór á Café-List með Jórunni og Boggu í gær. Þær ætla saman til Evrópu í ágúst - án mín.
En þetta var fínt í gær. Sumt var svona "happening" hjá einum einstaklingi innan hópsins sem verður ekki farið út í nánar hér en fátt hjá hinum tveim einstaklingunum.
Þetta kallast að segja ekki fréttir.

17 janúar 2003
...að lokum vil ég segja þetta. Hver á að þrífa draslið úr tjörninni eftir þessa andstæðinga virkjana gærdagsins? Meiru sóðarnir. Kannski er hugmyndin að það fjúki út í hafsauga eða upp á öræfin og þaðan ofaní kok á gæsunum sem ku vera þar út um allt.
Maður líttu þér nær. Burt með náttúruverndarsorpið.
Hættur.

Ég hef ákveðið að hafa tvær skoðanakannanir í gangi vegna "comments" sem ég fékk inn á hina fyrri. Einhver vitringurinn komst að þeirri niðurstöðu að þessi síða væri of galgopaleg til að spyrja svona alvarlegrar spurningar um frammistöðu andstæðinga virkjana. Þetta er greinilega háalvarlegt mál - ég var varla búinn að gera mér grein fyrir því fyrr. En meðan fólk hagar sér eins og fífl um allar grundir og hefur ekki stjórn á tilfinningum sínum né hugsunum vegna þessara framkvæmda þá áskil ég mér allan rétt til að haga mér eins galgopalega og mér sýnist og blanda saman galni og alvarleika sitt á hvað.
Þessi barátta er farin að minna fullmikið á baráttu Mannverndar gegn Kára Stefánssyni. Mannvernd er búin að lemja hausinn í sífellu við steininn án þess að fá nokkru áorkað nema svekkelsi í eigin garð. Skyldi upplagið í mannauðnum í þessum tveim frægu mótmælaaðgerðum nokkuð vera sama fólkið?
Maður getur nú orðið galinn, sagði Davíð forðum - eins og sjá má.

16 janúar 2003
Enn einu sinni eru náttúruverndarsinnar að eyðileggja prýðisgóðan málstað sinn með dónaskap og tillitsleysi. Þetta er svo röng aðferð að vera að öskra, æpa, púa og haga sér eins og smákrakkar á pöllum borgarstjórnar.
Ég bið smákrakka afsökunar. Þeir myndu aldrei haga sér svona.
Meiru bjánarnir þetta umhverfisverndarpakk - ég er búinn að fá meira en nóg af þeim og þeir verða bara að sætta sig við að það er of seint um rassinn gripið.
Og hana nú.

Er búinn að vera hamast í allan dag við Byggðastofnunar-lánsumsókn fyrir galdrana. Það gengur bara nokkuð vel og ég er tiltölulega bjartsýnn. Hringdi líka í menntamálaráðuneytið áðan og þeir virðast ætla að fara eftir tilmælum mínum um útborgun framlagsins af fjárlögum. Ég er himinlifandi yfir því - þá geta galdrarnir staðið við sínar skuldbindingar í næsta mánuði sem eru bara þó nokkrar.
Gott mál - góður dagur - gæða ble-si.
Ble-si
Gott mál - góður dagur - gæða ble-si.
Ble-si
Loksins lét ég verða að því að slíta mig frá imbakassanum og hreyfa mig!
Ég er búinn að finna út hið eina rétta trimm sem ég ætla að stunda á hverju kvöldi það sem eftir lifir. En það er ekki auðvelt ef einhver heldur það. Ó-nei. Maður verður alveg bullsveittur niðrúr og uppúr og til baka uppúr og niðrúr. Ekkert smá.
OK - þetta er aðferðin. Reka sjálfan sig á fætur frá ömurlegri sjónvarpsdagskránni og taka leigubíl frá Hringbraut niðrí bæ. Fara inn á krá og þamba þrjá öllara eins hratt og maður mögulega getur - eða allt þar til maður er alveg að pissa á sig. Algjörlega í spreng. Standa þá upp, leggja áherslu á að hugurinn skiptir alls engu máli, hunsa salerni kráarinnar og hlaupa heim - alveg í spreng. Það er ótrúlegt hvað maður hleypur alltaf hraðar og hraðar þegar maður nálgast markið.
Mér líður frábærlega vel núna - búinn að spretta úr spori eins og foli hlaupaléttur og til í allt.
Mér finnst ég vera svo heilbrigður og það sem meira er - ég hlakka ósegjanlega til að halda áfram í sportinu annað kvöld. Gott ef bumban hefur ekki bara líka skroppið saman!
Algjör kroppur að verða. Ég get varla sofnað því ég er svo spenntur.

15 janúar 2003
Ég er nú frekar leiður yfir því að hjólinu mínu, honum Bláma, var stolið í gærkvöldi. Þessum kæra vini sem hefur fylgt mér í margt ferðalagið - m.a. um Dannmörku þvera og endilanga.
Mjög undarlegt - þó var ég með hjólið inni í geymslu innan dyra í byggingunni sem ég bý í - að vísu ólæstri og snerti það síðast seinnipartinn í gær. Ennþá undarlegra er að hjólið var bara á öðrum pedalanum - þar sem ég var að dunda mér við að laga það fyrir sumarið. Það er erfitt að hjóla á stolnu hjóli á öðrum pedalanum. Ég er búinn að líta eftir því í nágrenninu en það bólar ekkert á því.
Ég veit svei mér ekki hvað ég á að halda. Á ég að trúa því að einhver innanhúsmaður hafi tekið það traustataki?
Það skyldi enginn abbast upp á galdramann. Því legg ég á helvítis þrjótinn að hann detti á hjólinu og hné- fót- handleggs- viðbeins- fingur- tá- og hálsbrotni svo illa - að hann nái sér aldrei af veikindunum sem fylgja í kjölfarið vegna verulega slæmrar sýkingar sem draga hann hægt til dauða.
Svo ætla ég að særa þetta djöfuls skoffín til andskotans:
"Farðu nú norður og niður
finnist þér hvergi friður
hver þinn leggur og liður
limist bálið viður;
grenji kvala kliður
kveljist hrekka smiður
ætið meir en miður,
maðurinn hver þess biður.
Flýðu nú kargur keppinn,
kvillaður, kramdur, deppinn,
kvalinn um vambar sveppinn,
hvorki heill né heppinn;
logann hafðu fyrir leppinn,
liggðu svo kyrr og kneppinn.
Út héðan, út þaðan,
út og gjör þig hraðan,
út í eldinn glaðan,
út í eisu hlaðan
út í pytt bölvaðan.
Minni ræðu flýðu frá,
fjandi óttabundinn;
þinni mæðu endir á
aldrei verði fundinn" (Hráki)
En skili hann hjólinu þá lofa ég að hann fái bara hálsríg. Vondan hálsríg.
Hér er mynd af Bláma í Danmörku.
Hér er mynd af Bláma mínum á brautarstöð í Danmörku.
Hér er þriðja myndin af Bláma og mér á ferðalagi og að lokum er hér mynd af okkur að ná í meiri bjór.
Ó, hvað ég sakna hans Bláma míns.

Jórunn er búinn að panta flugmiða til Evrópu 4. ágúst. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst.
Óþolandi þegar fólk er alltaf í útlöndum - og ég kemst ekki með. Það er bara ómögulegt fyrir mig að ákveða að fara með - rétt bara sísona - ég get ekki ákveðið að fara bara rétt bara svona sísona til útlanda í ágúst. Um hábjargræðistímann! Maður veit aldrei hvað getur komið upp á.
Fúlt. Bara fúlt.

14 janúar 2003
Það tilkynnist hér með að ég tek aftur orð mín um breyttan lífsstíl. Ég er hættur við að fara að hlaupa á hverju kvöldi. Það er alltof kalt til þess. Ég ætla bara að halda áfram að strjúka á mér bumbuna fyrir framan sjónvarpið á hverju kvöldi.
Það er öruggast. Þá sný ég mig heldur ekki á ökkla í einhverju sprikli utandyra og held því fullri heilsu.
Og reisn.
Ble-si.